laugardagur, 22. desember 2018

SkúffuSörur


Fyrstu jólin eftir að ég byrjaði að búa hittumst við nokkrar vinkonur og gerðum saman Sörur. Þá kom ein með uppskrift og í henni var Rice Krispies síðan þá hef ég alltaf gert þær þannig. 
Kremið var mikið bras að gera og tók þetta marga tíma að smyrja á hverja köku og hjúpa með súkkulaði. 
Ég er svo löngu hætt að nenna að brasa við þetta eins og við gerðum fyrst.
Núna dettur mér ekki í hug annað en að setja þetta í ofnskúffu og skera svo niður í litlar kökur.
Kremið hefur líka breyst mikið og er það krem sem ég geri núna einfalt og þægilegt.
Verst er hvað þær eru hrikalega góðar 


Sörur
4 eggjahvítur
4 dl flórsykur
5 dl Rice krispies

Eggjahvítur þeyttar þangað til eru farnar að stífna þá er flórsykrinum bætt út í smám saman og ekki stoppa að þeyta. Þegar soppan er orðin stíf er Rice Krispies blandað varlega út í.

Sett í ofnskúffu sem er klædd bökunarpappír og bakað á 180° undir og yfirhiti í 10-12 mín 

Krem
4 stk eggjarauður
200 gr mjúkt smjör
1 dl sýróp
4 msk kakó
10 msk flórsykur

1 msk kaffi eða heitt vatn

3- 400 gr súkkulaði

Eggjarauðurnar þeyttar, sýrópið sett í mjórri bunu út í og ekki stoppað að þeyta.
Smjörið sett smám saman út í og halda áfram að þeyta.
kaffi flórsykur og kakói bætt út í.
Þetta er svo þeytt alveg í spað allavega í 8-10 mín eða þangað til kremið er lauflétt.

Kremið sett á kaldan botninn, kremið kælt mjög vel, gott að skella þessu í frystinn.
og brætt súkkulaði sett yfir. 

Okkur finnst best að hafa rjómasúkkulaði

Þegar súkkulaðið er storknað eru skornar út litlar kökur sem eru geymdar í frysti.

þriðjudagur, 18. desember 2018

Vanilluís

Vanilluís sem hægt er að leika sér með endalaust, einfaldur og góður. Ég fékk þessa uppskrift á netinu fyrir löngu og eins og með margt annað þá skrifaði ég bara uppskriftina og veit svo ekkert hvaðan hún er. 
En góð er hún 🍨


4 egg
10 msk flórsykur
1 msk vanillusykur
Þeytt vel og lengi

1/2 líter léttþeyttum rjóma
Blandað varlega saman við eggjablönduna.
 
Út í þetta er svo hægt að blanda hverju sem er.

Rommkúlum, lakkrís, toblerone, daim, KitKat o.s.frv.

föstudagur, 14. desember 2018

Rice Krispies marens

Venjuleg uppskrift af Rice Krispies marens sem hægt er að finna í tugatali á netinu. Set þetta hingað inn vegna þess að ég man aldrei hvernig ég baka þetta m.v. minn ofn en hér að neðan er það sem ég er búin að finna út að hentar mér best.








6 eggjahvítur
3 dl sykur
1,5 dl púðursykur
75 gr rice krispies / 130 gr Corn flakes

þeyta og þeyta og þeyta...
Skipta deiginu í 2x 25 cm botna
Baka á 130° á blæstri báða botnana í ofninn.
Baka í 30 mín, svissa botnunum í ofninum og baka áfram í 30 mín.

sunnudagur, 25. nóvember 2018

Hafra- kornakex

Mjög gott kex með ostum og einnig bara til að borða eitt og sér. 



Uppskrift

2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl fimm korna blanda
6 dl haframjöl
6 dl hveiti
1/2 dl sykur
1,5 dl olía
3 dl súrmjólk
1 egg
1 tsk hjartasalt
1 msk salt


Ég set alltaf fræin og kornin í matvinnsluvél og myl þau.
Allt sett saman í skál og hrært með sleif. Ágætt að láta svo deigið bíða í smá stund ca 15 - 20 mín þá  verður betra að vinna með það. 
Flatt út á milli tveggja bökunarpappírsarka, þykktin ca 3 - 4 mm.
Skera út kökur, 🎄
Pikka kökurnar.
Baka á 180° á blæstri í ca  10 - 12 mín. 
EN bakaraofnar eru misjafnir. Læt þetta verða gullinbrúnt. Við viljum hafa frekar mikið bakað.
Það er ekkert heilagt með fræblönduna, aðallega að það séu 4 dl samtals, líka gott að hafa kúmen.



miðvikudagur, 10. október 2018

Þykkur pizzabotn og líka venjulegur


Norsk pizza

Stundum geri ég pizzu sem ég kalla norska pizzu. Þegar ég var au-pair í Noregi 1992 þá fórum við stundum og keyptum pizzu á veitingastað og voru þær pizzur svolítið öðruvísi en ég var vön. Botninn var mjög þykkur og ofaná var einskonar pottréttur með hakki og tómat, þykkt lag af osti var yfir öllu. Þetta er ágætis matur en minnir frekar á brauð með hakki en venjulega Pizzu. Ég man hvað ég var hissa þegar komið var með þessa pizzu á borðið til mín fyrst 😊😊



Hér er uppskrift af mjög góðum og mjúkum þykkum pizzabotn sem passar í ofnskúffu.  



4dl volgt vatn
3 msk olía
1 pk þurrger
1 tsk salt
9 dl hveiti


Hnoðað saman í hrærivél. látið hefast í ca 45 mín. Flatt út í ofnskúffu með höndunum, pikkað með gaffli.
Ofaná set ég svo kjötsósu svipaða og bolognese nema þykkri. Ég er ekki með uppskrift nota bara  tómata, tómatpúrru og svo það grænmeti og krydd sem ég á og langar í hverju sinni, sýð þetta vel og lengi skelli töfrasprotanum í og mauka vel. Bæti svo steiktu hakki í og smakka til. Sulla þessu á hnausþykkan botninn og vel af osti yfir.
Ég er með Pizza stillingu á ofninum mínum þannig að ég set ofninn á 220° og set skúffuna alveg neðst. Þannig eru leiðbeiningarnar með mínum ofni en það er örugglega misjafnt eftir ofnum.

Ef ég ætla að gera venjulega pizzu þá bara einfaldlega helminga ég uppskriftina af botninum og set í ofnskúffuna.

mánudagur, 10. september 2018

Marinering á lambakjöt

Hér er uppskrift af einfaldri marineringu sem er virkilega góð á lambakjöt. Fá innihaldsefni sem flestir eiga heima. Það er svo hægt að leika sér eins og maður vill bæta við og breyta en þetta er allavega fanta góð marinering.

1/4 bolli góð olía
1/4 bolli Worchestershire sósa
ca 2 tsk hvítlaukspipar 
og nokkir snúningar úr saltkvörninni


Mánudagslambið


Við erum bara fjögur í heimili svo lambalæri og hryggur dugar alveg a.m.k. tvisvar sinnum í matinn. Oft hitum við bara upp kjötið í sósu eða skerum það niður og notum það sem einskonar "roastbeef" á brauð með remulaði og steiktum og eiginmaðurinn fer með það í nesti fram eftir vikunni, Ekki sérlega spennandi í marga daga :) 
En oft geri ég líka einhverja rétti úr afgöngunum og er þessi uppskrift svona til að styðjast við. Ég breyti og bæti við alveg eins og hugurinn girnist og líka reyni ég að nota það sem er til og er jafnvel komið á síðasta snúning. Við erum alltaf að reyna að minnka matarsóun á heimilinu og er þessi réttur upplagður til þess.
Í þetta skiptið reyndi ég að mæla allt  vel til að geta sett þetta hingað inn. Núna setti ég ananas en hef líka sett epli og sleppt þá ananasinum.



Sósan eða gummsið
1 laukur brytjaður og steiktur
3 tsk. Karrý bætt út í laukinn og látið steikjast smá
Slatti af vatni það fer aðeins eftir hvað maður vill hafa þetta þykka sósu
2 tsk. salt 
2 tsk lamb islandia
1 tsk garam masala
1 lambateningur
1 msk. tómatsósa 
1 lítil dós ananas (ég mauka hann í mixernum mínum)
  
Ef sósan er of þunn þykki ég hana með hveitijafningi.
Í sósuna set ég svo brytjað eldað lambakjöt ( það sem var í afgang af sunnudagssteikinni ).                            
Sýð þetta vel og vandlega. Tíminn fer mest eftir því hvað ég er að flýta mér, það er nóg að kjötið sé orðið heitt í gegn og hveitið búið að fá að sjóða ef það er notað. En best er að sjóða þetta í allavega 10 mín.                         
Ef ég á afgang af rjóma skelli ég honum oft í jafnvel ef það er afgangur af þeyttum rjóma líka.                           
Ég smakka þetta líka alltaf til svo uppskrifin er eiginlega bara til að styðja sig við. Það er líka gott að steikja meira grænmeti t.d. papriku, sveppi, gulrætur, epli... og hafa í sósunni.   

Borið fram með hrísgrjónum og nan- eða hvítlauksbrauði

sunnudagur, 5. ágúst 2018

Bastogne kökur

Bastogne kökur eða Lu-kex eins og það er oftast kallað hér eru alveg hrikalega góðar með bæði kaffi og kaldri mjólk. Bestar eru þær heimabakaðar úr íslensku smjöri. Hér er uppskriftin mín. Það er auðvitað smekksatriði hversu mikið og hvaða krydd eru notuð en ég nota alltaf vanillusykur og kanil en aðeins misjafnt hvað ég nota annað. 


Bastogne kökur

200 gr smjör 

200 gr púðursykur

2 tsk natron

2 tsk vanillusykur

2 tsk  kanill

1 tsk negull

1tsk kardimomma

smá salt

40 gr síróp

40 gr hlynsíróp

300 gr hveiti

 

Allt sett saman í hrærivél og hnoðað saman.

Deiginu skipt í 8 parta.

Hver hluti er rúllaður í pylsu sem er aðeins flött út á plötu. bakað við 180° í  ca12 - 15 mín.

Skorið niður um leið og kemur úr ofninum.

ATH. deigið rennur vel út svo það þarf að hafa gott bil á milli pylsanna.


þriðjudagur, 24. júlí 2018

Hakkabuff með piparosti

Hér kemur uppskrift af hakkabuffi (bollum) sem er vinsæl hér hjá okkur. Stundum hef ég kartöflur og brúna sósu með og stundum sveitafranskar og kalda hvítlauks eða piparsósu með. 



Piparostabuffin vinsælu

Hakkabuff með piparosti

500 gr hakk (ég nota alltaf kindahakk)
1 dl rasp
1/3  piparostur rifinn
2 egg
1 laukur (smátt skorinn eða hakkaður)
1 stórt hvítlauksrif (marið)
1 msk oregano
1 tsk salt

Allt hrært saman.
Bollurnar settar á bökunarpappírsklædda ofnskúffu.
Sett í ofn á 180° í ca 30 mín



miðvikudagur, 20. júní 2018

Skinkuhorn

Þetta blogg fer nú að verða einskonar bakstursblogg, en mér finnst svo þægilegt að setja uppskriftirnar hingað inn og skoða þær svo í símanum þegar ég fer að baka. Skinkuhorn eru alltaf góð og þægilegt að eiga þau í frystinum. Góð til að gríp með í nesti í vinnuna eða ferðalagið. Hér er uppskrift sem ég nota, ég man ekki hvaðan hún er eða hvort ég hef eitthvað breytt henni en allavega virkar hún vel fyrir mig og er passleg í hrærivélina mína. Ég aðlaga flestar uppskriftir þannig að þær passi í hrærivélina en mín vél tekur ekki stærri uppskriftir en þessa svo vel sé, ég er ekki flínk að hnoða í höndunum og nota þessvegna tæknina :)



Skinkuhorn

6 dl volg mjólk
2 tsk þurrger
2 msk sykur
1,5 tsk salt
um 1 kg hveiti
0.8 dl góð olía
Skinka og ostur
Hægt er að nota hvaða ost sem er smurost, rjómaost, venjulegan gouda, havarta eða bara það sem hentar.

Allt hnoðað vel og deigið látið hefast í ca 1 klst.
Deigið flatt út og búnir til þríhyrningar þeir fylltir með skinku og osti og rúllað upp.
Látið hefa sig aftur í ca 1 klst.
Penslað með eggi og sesamfræum stráð yfir.
Bakað við 230° undir og yfirhiti í ca 10 mín

mánudagur, 18. júní 2018

Bollur með heilhveiti og kúmeni

Þessar bollur eru ósköp einfaldar og ekki mikið í þær lagt en það er auðvelt að poppa þær upp með því að setja eitthvað út í deigið í staðin fyrir kúmenið t.d. sólþurrkaða tómata, pestó, allskonar krydd, papriku, sveppi, lauk eða bara hvað sem er.



Bollur með heilhveiti

5,5 dl volgt vatn
3 tsk þurrger
1,5 dl heilhveiti
1 dl hveitiklíð
2 tsk salt
2 msk kúmen
10-11 dl hveiti
2-3 msk olía

Hnoðað vel og vandlega í hrærivél, látið forhefast í 1 klst. Búnar til bollur og þær látnar hefast í ca 45 mín. Penslað ef vill með eggi, mjólk, vatni... bara hvað hentar. Þessar bollur sem eru á myndinni eru ekki penslaðar með neinu.
Bakað í 12 - 15 mín á 220° undir og yfirhiti.


sunnudagur, 10. júní 2018

Grillpinnar



Við elskum að grilla og helst borða úti. Grillpinnar eru alveg snilldar græja bæði til að setja kjötbita og grænmeti á en svo eru þeir líka þægilegir til að grilla "kjötbollur" 
Það er auðvitað hægt að nota hvaða kjötbolluuppskrift sem er allt eftir hvað á að borða með og tilefni. Hreint hakk  sem er búið að krydda er líka alveg snilld að nota.
En allavega þessir pinnar eru hugsaðir sem kebab máltíð með tortillu, grænmeti og Tzatziki sósu (ætli sé til íslenskt nafn á þeirri sósu?)
Mér finnst upplagt að gera stóra uppskrift og setja í frost, þá er hægt að grípa með í nesti eða skella smá stund á grillið. 






Kebab-bollur á pinna


1 kg hakk (ég nota alltaf ærhakk það finnst okkur langbest og það eigum við alltaf til en auðvitað er hægt að nota bara það sem manni finnst best)
2 egg
100 gr brauðrasp
1 gulur laukur
1/2 rauðlaukur
2 hvítlauksrif
ég set allan laukinn í litla matvinnsluvél og geri hann að svona hálfgerðu mauki en það er alveg eins hægt að skera hann ég bara nenni því ekki 
3-4 góðir snúningar úr saltkvörninni 
4-5 góðir úr piparkvörninni
1 msk oregano
1 msk basilika
1 msk lamb islandia
Sett í hrærivél og tekinn dágóður snúningur í henni.
Búnar til bollur sem eru rúllaðar í pylsur og grillpinna sem er búinn að liggja í bleyti í 5-10 mín stungið í. 
Grillað og vola gæti ekki verið einfaldara.






útilegubollur

Fallegi gamli kökubaukurinn fær að fara með í Útilegu

Við fórum í fyrstu útilegu sumarsins og ég ákvað að taka með heimabakaðar bollur.
Ég bakaði þær sama dag og við fórum þannig að þær voru alveg nýjar. Við vorum í tvær nætur og voru þær ennþá fínar þegar við komum heim. Ég setti þær í poka og í kökubauk. Yndislega mjúkar og upplagt að smella þeim örsnöggt á heitt grill og velgja þær :)

Dásamlegt með kaffinu 

Kidda sér um að hnoða og hnoða
Svona deigskafa finnst mér frábært apparat

Útilegubollurnar


3,5 dl volgt vatn
2 tsk þurrger
1 dl rúgmjöl
1 dl korn ( sesam, hörfræ, graskersfræ o.s.frv)
1 msk kúmen
1/2 dl hveitiklíð
2 tsk salt
ca 5-6 dl hveiti
2 msk olía

Hnoðað í hrærivél
látið hefast í 1 klst
mótið bollur og látið þær hefast 45 mín
Penslaðar með mjólk
bakað á 220° í 12-15 mín

fimmtudagur, 24. maí 2018

Pylsubrauðin


Það er mjög einfalt að gera pylsubrauð, svo ég tali nú ekki um hversu mikið betri þau eru heldur en þessi sem eru framleidd í massavís án allrar umhyggju. 
Það er fínt að setja þau í frystinn og skella þeim á 170° á blástur í nokkrar mín þegar þau hafa þiðnað upp.



Pylsubrauð

1/2 líter volgt vatn
1 egg
1 bréf þurrger
2 msk sykur
2 tsk salt
75 gr smjör í teningum
 u.þ.b. 1 kíló hveiti

Hnoðað vel í hrærivélinni, látið hefast í 1 klst.
Slegið niður og búin til 20 pylsubrauð þau látin hefast í u.þ.b. 45 mín

Bakað í 15 -20 mín á 220° undir og yfirhita

mánudagur, 21. maí 2018

Bollur í nestispakkann

Núna þurfa 3 að taka með sér nesti fyrir allan daginn og er vinsælt að taka með sér bollur. Ég geri nestisbollurnar frekar stórar. Uppskriftin af þessum bollum er uppskriftin "þægilegu bollurnar" hér neðar og setti ég smá kúmen, hörfræ, sólblómafræ, sesamfræ og graskersfræ í blönduna. Ég set alltaf kornin í litla matvinnsluvél og myl þau. Okkur finnst það betra, en það er auðvitað ekkert nauðsynlegt.

Þægilegu bollurnar í nestispakkann 

föstudagur, 18. maí 2018

Súrmjólkurbollurnar

Svo mjúkar og bragðgóðar



Súrmjólkurbollur

4.5 dl mjólk
200 gr súrmjólk
Mjólk og súrmjólk hitað ylvolgt (ég nota örbylgjuofn)
1 pk þurrger
2 msk hrásykur
1 dl korn ( ég notaði hörfræ og sólblómafræ mulin og ristuð sesamfræ)
1 ½ - 2  tsk salt
70 gr ristað haframjöl
700 gr hveiti
2 msk góð olía

Allt nema olía hnoðað í 10 mín. Olíunni bætt við og hnoðað í aðrar 10 mín.

Látið hefast í ca 1 klst
Búnar til bollur og þær látnar hefast í ca 45 mín

Penslað með volgri mjólk

Bakað við 220° í 12 -15 mín undir og yfirhiti

fimmtudagur, 17. maí 2018

Langbestu hamborgarabrauðin





Hamborgarabrauð

1 dl volgt mjólk
½ dl volgt vatn
½ tsk sykur
1 tsk þurrger
Smá salt
250 gr hveiti
25 gr smjör í teningum

Allt nema smjör sett í hrærivélina hnoðað í ca 1o mín
Smjörið sett út í og hnoðað áfram í  ca 10 mín
Deigið látið hefa sig í u.þ.b. 1 klukkutíma

Búnar til 4-5 bollur og þær látnar hefa sig í u.þ.b 45 mín
Penslað með volgu vatni og sesamfræ sett ofaná ef vill.

Bakað á 220° á undir og yfirhita í 12 – 15 mín


Þægilegu bollurnar


Ég hef verið með uppskriftirnar mínar á mörgum stöðum, ýmist í tölvunni eða niðurskrifaðar. Ég nota alltaf uppskrift en í gegnum árin hef ég oft breytt uppskriftum og skrifað niður jafnóðum mínar útfærslur og það sem ég geri öðruvísi. Þetta er oft flókið sístem og eru nöfnin stundum skondin t.d.„breytt brauð af neti, bakað smá meira en uppskrift“😊
Ég ákvað því að reyna að koma smá skipulagi á þetta og skella smám saman hér á bloggið þeim uppskriftum sem ég nota mest. Það er aðallega til þæginda fyrir mig en ég vona líka að einhverjir geti nýtt sér þær.
Ég hef líka gaman af að mynda svo auðvitað skelli ég myndum með. 

Mjúkar og mátulegar

Hnoða smá með höndunum, maður verður að finna hvort þetta er til.

Deigið búið að hefast 1x

Komnar á grind og eru að kólna




Þægilegu bollurnar

4 dl ylvolg mjólk
½ pk þurrger
1 tsk salt
½ msk sykur
3 dl heilhveiti
½ dl kornblanda ( t.d. sólblómafræ, sesamfræ, hörfræ, hafrar)
Ég myl alltaf fræblönduna en það er ekkert nauðsynlegt
5-6 dl hveiti
Maður verður svolítið að finna hversu mikið af hveiti á að vera, ég enda alltaf á að setja hveitið og sé og finn (pota bara í það 😊)þegar deigið er orðið passlega þykkt ekki of blautt eða þurrt.

Allt hnoðað saman í hrærivélinni í ca 10 mín

50 gr af smjöri í teningum bætt við og hnoðað áfram í ca 10 mín

Látið hefast í ca 1 klst

Mótaðar bollur og látið þær hefast í ca 45 mín

Penslaðar með volgri mjólk eða eggi og sett fræ ofaná ef maður vill

Bakað við 220° á undir og yfirhita í 12-15 mín

föstudagur, 11. maí 2018

Föstudagskaffið


Kanilsnúðar og epla-súkkulaði hnútar með glassúr. 

Kanilsnúðar


Epla-súkkulaði hnútar

Ég nota alltaf sama grunndeigið þegar ég geri eitthvað sætt úr gerdeigi. Uppskriftina fékk ég á https://trinesmatblogg.no/ og hún er bara sú allra besta sem ég hef notað og klikkar aldrei.


Grunndeig:

950 gr hveiti (ca)
5 dl volg mjólk
2 tsk þurrger
125 gr sykur
1 tsk  kardimomma
1/2 tsk  salt
1 egg
150 gr   mjúkt smjör , í teningum

Set allt nema smjörið í hrærivél og hnoða í ca 10 mín, set svo smjörteningana í og hnoða ca í 10 mín.
Læt deigið hefast í 1 klst, geri svo úr því t.d. kanilsnúða eða hnúta eða hvað sem hugurinn girnist. Læt hefast aftur í ca 45 mín pensla svo með eggi og baka við 220° undir og yfirhita í ca 15 mín

Fylling Í epla og súkkulaði hnúta:

2 dl eplamús
3 tsk kakó
6 tsk hrásykur
1 tsk vanillusykur


sunnudagur, 22. apríl 2018

Baka matarbrauð

Mér finnst mjög gaman að baka þó að ég geri það ekki mjög oft. Skemmtilegast finnst mér að baka matarbrauð. Ég studdist við uppskrift af netinu en breytti henni samt eftir mínu höfði.




Hér er uppskriftin

Kornabrauð frú Hrísó

Deig 1
300 gr fræ (ég notaði fimm korna blöndu í þetta)
3,5 dl sjóðandi vatn
Látið bíða í nokkra tíma eða bara yfir nótt

Deig 2
640 gr hveiti
265 heilhveiti
5 dl vatn
1 pk þurrger
1 tsk salt
Deig 1 og 2 blandað saman og hnoðað í 10 mín í hrærivél, látið hefast í ca klukkutíma og þá hnoðað smá á borði og sett í 2 stóra brauðforma og látið hefast í 45 mín
Ef vill sáldra smá fræum yfir
Bakað 220°c í 30 – 40 mín
undir og yfirhiti
 Verði ykkur að góðu