Það er mjög einfalt að gera pylsubrauð, svo ég tali nú ekki um hversu mikið betri þau eru heldur en þessi sem eru framleidd í massavís án allrar umhyggju.
Það er fínt að setja þau í frystinn og skella þeim á 170° á blástur í nokkrar mín þegar þau hafa þiðnað upp.
Pylsubrauð
1/2 líter volgt vatn
1 egg
1 bréf þurrger
2 msk sykur
2 tsk salt
75 gr smjör í teningum
u.þ.b. 1 kíló hveiti
Hnoðað vel í hrærivélinni, látið hefast í 1 klst.
Slegið niður og búin til 20 pylsubrauð þau látin hefast í u.þ.b. 45 mín
Bakað í 15 -20 mín á 220° undir og yfirhita

Engin ummæli:
Skrifa ummæli