miðvikudagur, 20. júní 2018

Skinkuhorn

Þetta blogg fer nú að verða einskonar bakstursblogg, en mér finnst svo þægilegt að setja uppskriftirnar hingað inn og skoða þær svo í símanum þegar ég fer að baka. Skinkuhorn eru alltaf góð og þægilegt að eiga þau í frystinum. Góð til að gríp með í nesti í vinnuna eða ferðalagið. Hér er uppskrift sem ég nota, ég man ekki hvaðan hún er eða hvort ég hef eitthvað breytt henni en allavega virkar hún vel fyrir mig og er passleg í hrærivélina mína. Ég aðlaga flestar uppskriftir þannig að þær passi í hrærivélina en mín vél tekur ekki stærri uppskriftir en þessa svo vel sé, ég er ekki flínk að hnoða í höndunum og nota þessvegna tæknina :)



Skinkuhorn

6 dl volg mjólk
2 tsk þurrger
2 msk sykur
1,5 tsk salt
um 1 kg hveiti
0.8 dl góð olía
Skinka og ostur
Hægt er að nota hvaða ost sem er smurost, rjómaost, venjulegan gouda, havarta eða bara það sem hentar.

Allt hnoðað vel og deigið látið hefast í ca 1 klst.
Deigið flatt út og búnir til þríhyrningar þeir fylltir með skinku og osti og rúllað upp.
Látið hefa sig aftur í ca 1 klst.
Penslað með eggi og sesamfræum stráð yfir.
Bakað við 230° undir og yfirhiti í ca 10 mín

mánudagur, 18. júní 2018

Bollur með heilhveiti og kúmeni

Þessar bollur eru ósköp einfaldar og ekki mikið í þær lagt en það er auðvelt að poppa þær upp með því að setja eitthvað út í deigið í staðin fyrir kúmenið t.d. sólþurrkaða tómata, pestó, allskonar krydd, papriku, sveppi, lauk eða bara hvað sem er.



Bollur með heilhveiti

5,5 dl volgt vatn
3 tsk þurrger
1,5 dl heilhveiti
1 dl hveitiklíð
2 tsk salt
2 msk kúmen
10-11 dl hveiti
2-3 msk olía

Hnoðað vel og vandlega í hrærivél, látið forhefast í 1 klst. Búnar til bollur og þær látnar hefast í ca 45 mín. Penslað ef vill með eggi, mjólk, vatni... bara hvað hentar. Þessar bollur sem eru á myndinni eru ekki penslaðar með neinu.
Bakað í 12 - 15 mín á 220° undir og yfirhiti.


sunnudagur, 10. júní 2018

Grillpinnar



Við elskum að grilla og helst borða úti. Grillpinnar eru alveg snilldar græja bæði til að setja kjötbita og grænmeti á en svo eru þeir líka þægilegir til að grilla "kjötbollur" 
Það er auðvitað hægt að nota hvaða kjötbolluuppskrift sem er allt eftir hvað á að borða með og tilefni. Hreint hakk  sem er búið að krydda er líka alveg snilld að nota.
En allavega þessir pinnar eru hugsaðir sem kebab máltíð með tortillu, grænmeti og Tzatziki sósu (ætli sé til íslenskt nafn á þeirri sósu?)
Mér finnst upplagt að gera stóra uppskrift og setja í frost, þá er hægt að grípa með í nesti eða skella smá stund á grillið. 






Kebab-bollur á pinna


1 kg hakk (ég nota alltaf ærhakk það finnst okkur langbest og það eigum við alltaf til en auðvitað er hægt að nota bara það sem manni finnst best)
2 egg
100 gr brauðrasp
1 gulur laukur
1/2 rauðlaukur
2 hvítlauksrif
ég set allan laukinn í litla matvinnsluvél og geri hann að svona hálfgerðu mauki en það er alveg eins hægt að skera hann ég bara nenni því ekki 
3-4 góðir snúningar úr saltkvörninni 
4-5 góðir úr piparkvörninni
1 msk oregano
1 msk basilika
1 msk lamb islandia
Sett í hrærivél og tekinn dágóður snúningur í henni.
Búnar til bollur sem eru rúllaðar í pylsur og grillpinna sem er búinn að liggja í bleyti í 5-10 mín stungið í. 
Grillað og vola gæti ekki verið einfaldara.






útilegubollur

Fallegi gamli kökubaukurinn fær að fara með í Útilegu

Við fórum í fyrstu útilegu sumarsins og ég ákvað að taka með heimabakaðar bollur.
Ég bakaði þær sama dag og við fórum þannig að þær voru alveg nýjar. Við vorum í tvær nætur og voru þær ennþá fínar þegar við komum heim. Ég setti þær í poka og í kökubauk. Yndislega mjúkar og upplagt að smella þeim örsnöggt á heitt grill og velgja þær :)

Dásamlegt með kaffinu 

Kidda sér um að hnoða og hnoða
Svona deigskafa finnst mér frábært apparat

Útilegubollurnar


3,5 dl volgt vatn
2 tsk þurrger
1 dl rúgmjöl
1 dl korn ( sesam, hörfræ, graskersfræ o.s.frv)
1 msk kúmen
1/2 dl hveitiklíð
2 tsk salt
ca 5-6 dl hveiti
2 msk olía

Hnoðað í hrærivél
látið hefast í 1 klst
mótið bollur og látið þær hefast 45 mín
Penslaðar með mjólk
bakað á 220° í 12-15 mín