mánudagur, 30. janúar 2012

Og áfram dundum við


Þegar maður kaupir gamalt hús er eðlilegt að eitthvert viðhald þurfi, núna erum við búin að eiga heima hér í meira en ár og ýmislegt búin að dunda við að laga. Bakdyraklósettið var ekki á forgangslistanum en er búið núna og satt að segja erum við himinsæl. Breytingarnar kostuðu okkur sáralítinn pening, margt hægt að gera fyrir lítið fé.

Við tókum niður skáp sem var u.þ.b. að detta í sundur en búin að þjóna sínu hlutverki vel, settum gamla hillu upp í staðin, er að bræða það með mér hvort ég eigi að setja blúndu í einhverjum lit framaná hillurnar.

Hér settum við nýjan og mun minni vaska, sem fer betur með plássið, nýjan spegil og rúllugardínu fyrir hillur sem voru fyrir því þær geyma ekki fallegustu hlutina á heimilinu, þvottaefni og tuskur og annað þesslegt.

Hér sést hvernig hillurnar voru og mikið sem það er snyrtilegra að geta dregið fyrir og falið þetta bráðnauðsynlega en miður fallega dót.

föstudagur, 27. janúar 2012

Fyrir og eftir

Leiðindaveður hefur einkennt þennann janúarmánuð, við hjónin höfum verið að dunda við eitt og annað smálegt :) Hér koma smá sýnishorn en við erum hvergi nærri hætt og eigum mikið eftir :)

Klósettrúllustandurinn á bakdyraklósettinu var eitthvað svo dimmur og drungalegur svo ég ákvað að gera hann ögn glaðlegri :)



Þvottahúsgólfið fyrir og eftir flísalögn, ótrúlegur munur :)









Glerið fyrir sturtunni fór svo mikið í taugarnar á mér, það var alveg sama hvernig ég þreif það kýsillinn úr hitaveitunni var alltaf fastur og glerið matt og ljótt, ég ákvað því að líma á það plast blúndudúk og mér finnst þetta koma mikið betur út og er mikið hlýlegra að auki.









sunnudagur, 8. janúar 2012

Hrökkbrauð á eftir öllu gúmmilaðinu.

Það er mjög auðvelt og gott að gera hrökkbrauð, ég fann mér uppskrift á netinu og prufaði :)




Kornið komið í stóru skálina



Gerði eina plötu af pínulitlu hrökkbrauði sem er gott að nota með ostum



mjög gott hrökkbrauð





Hlýtt og notalegt í janúarmyrkrinu

sunnudagur, 1. janúar 2012

Gleðilegt ár, vona að það færi okkur gleði og hamingju. Hér voru áramótin notaleg, á morgun hefst svo venjuleg rútína hjá V þann 4 byrjar HT svo í skólanum og við mæðgur þann 5.




HTV u.þ.b. að fara að sprengja bombuna :)




Nóg af rusli í innibombunni