föstudagur, 27. janúar 2012

Fyrir og eftir

Leiðindaveður hefur einkennt þennann janúarmánuð, við hjónin höfum verið að dunda við eitt og annað smálegt :) Hér koma smá sýnishorn en við erum hvergi nærri hætt og eigum mikið eftir :)

Klósettrúllustandurinn á bakdyraklósettinu var eitthvað svo dimmur og drungalegur svo ég ákvað að gera hann ögn glaðlegri :)



Þvottahúsgólfið fyrir og eftir flísalögn, ótrúlegur munur :)









Glerið fyrir sturtunni fór svo mikið í taugarnar á mér, það var alveg sama hvernig ég þreif það kýsillinn úr hitaveitunni var alltaf fastur og glerið matt og ljótt, ég ákvað því að líma á það plast blúndudúk og mér finnst þetta koma mikið betur út og er mikið hlýlegra að auki.









3 ummæli:

  1. Sæl. Fann bloggið þitt í gegnum bloggið hennar Stínu Sæm og er heilluð. Mikið afskaplega er allt fallegt hjá þér. Má ég forvitnast með hverju þú límdir dúkinn í gluggann og á sturtuglerið. Hlakka til að fylgjast með blogginu þínu.
    Kveja, Svala Helga Eiríks

    SvaraEyða
  2. Takk Kikka mín :)
    Svala Helga ég þakka fallegt komment, ég notaði svona double tape, það fæst á rúllum í A4 og örugglega fleiri stöðum, ég setti bara límrönd alveg yfir eftst og neðst í glugganum en 2 rendur á milli á sturtuglerið, það er svo mikið stærra. Og þetta helst alveg :)

    SvaraEyða