Ég hef verið með uppskriftirnar mínar á mörgum stöðum, ýmist
í tölvunni eða niðurskrifaðar. Ég nota alltaf uppskrift en í gegnum árin hef ég
oft breytt uppskriftum og skrifað niður jafnóðum mínar útfærslur og það sem ég
geri öðruvísi. Þetta er oft flókið sístem og eru nöfnin stundum skondin t.d.„breytt brauð af neti, bakað smá meira en
uppskrift“😊
Ég ákvað því að reyna að koma smá skipulagi á þetta og skella
smám saman hér á bloggið þeim uppskriftum sem ég nota mest. Það er aðallega til
þæginda fyrir mig en ég vona líka að einhverjir geti nýtt sér þær.
Ég hef líka gaman af að mynda svo auðvitað skelli ég myndum með.
Mjúkar og mátulegar
 |
| Hnoða smá með höndunum, maður verður að finna hvort þetta er til. |
 |
| Deigið búið að hefast 1x |
 |
| Komnar á grind og eru að kólna |
Þægilegu bollurnar
4 dl ylvolg mjólk
½ pk þurrger
1 tsk salt
½ msk sykur
3 dl heilhveiti
½ dl kornblanda ( t.d. sólblómafræ, sesamfræ, hörfræ, hafrar)
Ég myl alltaf fræblönduna en það er ekkert nauðsynlegt
5-6 dl hveiti
Maður verður svolítið að finna hversu mikið af hveiti á að
vera, ég enda alltaf á að setja hveitið og sé og finn (pota bara í það 😊)þegar
deigið er orðið passlega þykkt ekki of blautt eða þurrt.
Allt hnoðað saman í hrærivélinni í ca 10 mín
50 gr af smjöri í teningum bætt við og hnoðað áfram í ca 10
mín
Látið hefast í ca 1 klst
Mótaðar bollur og látið þær hefast í ca 45 mín
Penslaðar með volgri mjólk eða eggi og sett fræ ofaná ef
maður vill
Bakað við 220° á undir og yfirhita í 12-15 mín