föstudagur, 11. maí 2018

Föstudagskaffið


Kanilsnúðar og epla-súkkulaði hnútar með glassúr. 

Kanilsnúðar


Epla-súkkulaði hnútar

Ég nota alltaf sama grunndeigið þegar ég geri eitthvað sætt úr gerdeigi. Uppskriftina fékk ég á https://trinesmatblogg.no/ og hún er bara sú allra besta sem ég hef notað og klikkar aldrei.


Grunndeig:

950 gr hveiti (ca)
5 dl volg mjólk
2 tsk þurrger
125 gr sykur
1 tsk  kardimomma
1/2 tsk  salt
1 egg
150 gr   mjúkt smjör , í teningum

Set allt nema smjörið í hrærivél og hnoða í ca 10 mín, set svo smjörteningana í og hnoða ca í 10 mín.
Læt deigið hefast í 1 klst, geri svo úr því t.d. kanilsnúða eða hnúta eða hvað sem hugurinn girnist. Læt hefast aftur í ca 45 mín pensla svo með eggi og baka við 220° undir og yfirhita í ca 15 mín

Fylling Í epla og súkkulaði hnúta:

2 dl eplamús
3 tsk kakó
6 tsk hrásykur
1 tsk vanillusykur


Engin ummæli:

Skrifa ummæli