Hér er uppskriftin
Kornabrauð frú Hrísó
Deig 1
300 gr fræ (ég notaði fimm korna blöndu í þetta)
3,5 dl sjóðandi vatn
Látið bíða í nokkra tíma eða bara yfir nótt
Deig 2
640 gr hveiti
265 heilhveiti
5 dl vatn
1 pk þurrger
1 tsk salt
Deig 1 og 2 blandað saman og hnoðað í 10 mín í hrærivél, látið
hefast í ca klukkutíma og þá hnoðað smá á borði og sett í 2 stóra brauðforma og
látið hefast í 45 mín
Ef vill sáldra smá fræum yfir
Bakað 220°c í 30 – 40 mín
undir og yfirhiti
Verði ykkur að góðu


Engin ummæli:
Skrifa ummæli