Sýnir færslur með efnisorðinu uppstillingar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu uppstillingar. Sýna allar færslur

þriðjudagur, 3. júlí 2012

Signir sól...

sérhvern hól.  

Sveitin klæðist geisla kjól.
Blómin blíð, björt og fríð 


blika fjalls í hlíð.

Nú er fagurt flest í dag.
Fuglar syngja gleðibrag. 

Sumar ljóð, sæl og rjóð, syngja börnin góð.

Gunnar M. Magnússon


Yndislegt veður og tóm hamingja í Fnjóskadalnum :)


sunnudagur, 19. febrúar 2012

Heklað og myndað

Helgin var töluvert undirlögð af hekli, allt byrjaði þetta með því að ég keypti mér einn lítinn bleikan blúndudúk í Blómfríði, svo þegar hann var kominn langaði mig svo í fleiri, ég var ekki í aðstöðu til að renna í bæinn en átti bleikt garn og svo var ég svo heppin að móðir mín kom í heimsókn og þá byrjuðu nú lætin og er þetta afrakstur helgarinnar. Mikið sem þetta var gaman.






















þriðjudagur, 14. febrúar 2012

Fjársjóðskistan mín

Gamli fallegi kassinn minn, hefur ekki ratað á mynd fyrr. Ég er búin að eiga þennann kassa í fjöldamörg ár, hann er gersemi. Ég var að setja utanum niðursuðudósir í kvöld og ákvað að deila því með ykkur og rakst þá á kassan og notaði hann í uppstillinguna :)





Lítið mál að setja pappír eða mála baunadósirnar :) 


sunnudagur, 8. janúar 2012

Hrökkbrauð á eftir öllu gúmmilaðinu.

Það er mjög auðvelt og gott að gera hrökkbrauð, ég fann mér uppskrift á netinu og prufaði :)




Kornið komið í stóru skálina



Gerði eina plötu af pínulitlu hrökkbrauði sem er gott að nota með ostum



mjög gott hrökkbrauð





Hlýtt og notalegt í janúarmyrkrinu

mánudagur, 15. ágúst 2011

Ágústrómantík :)

♥ Þegar fer að dimma á kvöldin, er ég í essinu mínu og kertaljós og kósýlegheit í hámarki hér á bæ ♥






föstudagur, 12. ágúst 2011

Fallegi eldhúsglugginn minn

Loksinns búin að setja gardínur fyrir eldhúsgluggann minn, neðri kappinn er vaxdúkur úr rúmfó sem ég límdi í. Svo á ég eftir að fá mér luktir eða ljós og eitthvað meira dúllerí.





laugardagur, 23. júlí 2011

Sorg yfir Noregi

Kveikti á kertum í kvöld vegna hörmunganna í Noregi, vona að góður guð vaki yfir norsku þjóðinni allri

þriðjudagur, 19. júlí 2011

Bleikir draumar :)

Fékk svo undurgóðar stelpur í heimsókn og fór svo með þeim í stelpuferð og verslaði bleikt :)






Afmælispakki handa mágkonu minni sem bauð í stórveislu eins og henni er lagið :)

föstudagur, 1. júlí 2011

Sápusæla á hólnum :)

Þæfði í dag 6 sápur sem fara svo á Goðafossmarkað, vonandi fara þær svo vel í túristana :)