Mikið er miðnætursólin falleg og hugljuf, svona var fjörðurinn minn fagur þegar við komum úr ferðalagi úr Húnavatnssýslu sem tókst í alla staði vel og höfðum við gaman af. Komum heim klifjuð af matvælum úr kistu Húnvetninga, heimagerðir ostar og sultur, brauð og silungur úr Arnarvatninu reyktur á staðnum. Svona gourmet er fyrir okkur :)