Sýnir færslur með efnisorðinu matarbrauð. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu matarbrauð. Sýna allar færslur

sunnudagur, 24. mars 2019

Morgunbrauð í potti

Einfalt og gott með morgunkaffinu um helgar



Morgunbrauð 

500 gr af mjöli og fræjum samanlagt
1 tsk þurrger
1 tsk salt
4 dl volgt vatn

Allt hrært saman en ekki hnoðað, plastfilma sett yfir skálina til að halda rakanum. Látið hefast í ca 8 tíma við stofuhita.

Pottur sem má fara í ofn og lokið líka er það sem bakað er í.

Ofninn stilltur á 230° og potturinn settur inní og látinn hitna vel, ca 10 mín

Bökunarpappír settur á borð og hveiti stráð yfir hann, deiginu hellt á pappírinn og brauðið mótað, ekki hnoðað samt.

Skellt í sjóðheitan pottinn, passa að brenna sig ekki og bakað í 30 mín með loki og 10 mín með ekkert lok.

laugardagur, 23. mars 2019

Hversdagsbrauð


Þetta er mjög gott og ódýrt brauð, finnst það kannski svipa einna mest til "heimilisbrauðsins" sem hægt er að kaupa, af þeim brauðum sem ég hef bakað. Þetta er ekki gróft brauð en auðvitað er hægt að setja korn og grófara útí og minnka þá hveitið. Stundum langar okkur í minna gróft t.d. til að rista og búa til heitar samlokur og er þetta brauð tilvalið í það. 



Hversdagsbrauð (heimilisbrauðið)


🌸 ½ líter volgt vatn

🌸 1 ½ dl matarolía

🌸 1/2 msk sýróp (t.d. agave)

🌸 1/2 bréf þurrger eða 2-3 tsk

🌸 1 dl hveitiklíð

🌸 1/2 msk salt

🌸 u.þ.b. 1 kg hveiti 




Ég set alltaf hveitið seinast og met hversu mikið ég vil hafa. Þannig að það klístrist ekki við skálina en samt ekki farið að þorna.
Ég hnoða alltaf gerdeig í hrærivél og hnoða lengi ca 10 - 15 mín.
Látið forhefast í a.m.k. klukkustund. Mótað og hefað aftur í a.m.k. 45 mín.

Bakað á 220°í miðjum ofni á undir og yfirhita
Ca 30 - 40 mín.


sunnudagur, 22. apríl 2018

Baka matarbrauð

Mér finnst mjög gaman að baka þó að ég geri það ekki mjög oft. Skemmtilegast finnst mér að baka matarbrauð. Ég studdist við uppskrift af netinu en breytti henni samt eftir mínu höfði.




Hér er uppskriftin

Kornabrauð frú Hrísó

Deig 1
300 gr fræ (ég notaði fimm korna blöndu í þetta)
3,5 dl sjóðandi vatn
Látið bíða í nokkra tíma eða bara yfir nótt

Deig 2
640 gr hveiti
265 heilhveiti
5 dl vatn
1 pk þurrger
1 tsk salt
Deig 1 og 2 blandað saman og hnoðað í 10 mín í hrærivél, látið hefast í ca klukkutíma og þá hnoðað smá á borði og sett í 2 stóra brauðforma og látið hefast í 45 mín
Ef vill sáldra smá fræum yfir
Bakað 220°c í 30 – 40 mín
undir og yfirhiti
 Verði ykkur að góðu