laugardagur, 10. desember 2022

Rúgbrauðið besta

Rúgbrauðsbakstur tilheyrir jólaundirbúningi hér í Hrísó.  Ég baka það einstaka sinnum á öðrum tíma en gæti gert það mikið oftar. Þessi uppskrift er einhverstaðar af veraldarvefnum með lítilsháttar breytingum að smekk okkar t.d. minnkaði ég sírópið og bætti við saltið. 


750 g rúgmjöl
400 g heilhveiti
5 tsk natron
3,5 tsk salt
150 gr dökkur púðursykur
250 g síróp
1,5 l súrmjólk

Þurrefnin sett í stóra skál blandað vel saman.
Sírópi og súrmjólk bætt við og öllu hrært vel saman.
Ég baka þetta í 5 mjólkurfernum og set 550-600gr í hverja.
Baka við 90-100°c í ca 12 tíma.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli