![]() |
| Fallegi gamli kökubaukurinn fær að fara með í Útilegu |
Við fórum í fyrstu útilegu sumarsins og ég ákvað að taka með heimabakaðar bollur.
Ég bakaði þær sama dag og við fórum þannig að þær voru alveg nýjar. Við vorum í tvær nætur og voru þær ennþá fínar þegar við komum heim. Ég setti þær í poka og í kökubauk. Yndislega mjúkar og upplagt að smella þeim örsnöggt á heitt grill og velgja þær :)
![]() |
| Dásamlegt með kaffinu |
![]() |
| Kidda sér um að hnoða og hnoða |
![]() |
| Svona deigskafa finnst mér frábært apparat |
Útilegubollurnar
3,5 dl volgt vatn
2 tsk þurrger
1 dl rúgmjöl
1 dl korn ( sesam, hörfræ, graskersfræ o.s.frv)
1 msk kúmen
1/2 dl hveitiklíð
2 tsk salt
ca 5-6 dl hveiti
2 msk olía
Hnoðað í hrærivél
látið hefast í 1 klst
mótið bollur og látið þær hefast 45 mín
Penslaðar með mjólk
bakað á 220° í 12-15 mín




Engin ummæli:
Skrifa ummæli