Við elskum að grilla og helst borða úti. Grillpinnar eru alveg snilldar græja bæði til að setja kjötbita og grænmeti á en svo eru þeir líka þægilegir til að grilla "kjötbollur"
Það er auðvitað hægt að nota hvaða kjötbolluuppskrift sem er allt eftir hvað á að borða með og tilefni. Hreint hakk sem er búið að krydda er líka alveg snilld að nota.
En allavega þessir pinnar eru hugsaðir sem kebab máltíð með tortillu, grænmeti og Tzatziki sósu (ætli sé til íslenskt nafn á þeirri sósu?)
Mér finnst upplagt að gera stóra uppskrift og setja í frost, þá er hægt að grípa með í nesti eða skella smá stund á grillið.
Kebab-bollur á pinna
2 egg
100 gr brauðrasp
1 gulur laukur
1/2 rauðlaukur
2 hvítlauksrif
ég set allan laukinn í litla matvinnsluvél og geri hann að svona hálfgerðu mauki en það er alveg eins hægt að skera hann ég bara nenni því ekki
3-4 góðir snúningar úr saltkvörninni
4-5 góðir úr piparkvörninni
1 msk oregano
1 msk basilika
1 msk lamb islandia
Sett í hrærivél og tekinn dágóður snúningur í henni.
Búnar til bollur sem eru rúllaðar í pylsur og grillpinna sem er búinn að liggja í bleyti í 5-10 mín stungið í.
Grillað og vola gæti ekki verið einfaldara.



Engin ummæli:
Skrifa ummæli