Þegar maður kaupir gamalt hús er eðlilegt að eitthvert viðhald þurfi, núna erum við búin að eiga heima hér í meira en ár og ýmislegt búin að dunda við að laga. Bakdyraklósettið var ekki á forgangslistanum en er búið núna og satt að segja erum við himinsæl. Breytingarnar kostuðu okkur sáralítinn pening, margt hægt að gera fyrir lítið fé.
Við tókum niður skáp sem var u.þ.b. að detta í sundur en búin að þjóna sínu hlutverki vel, settum gamla hillu upp í staðin, er að bræða það með mér hvort ég eigi að setja blúndu í einhverjum lit framaná hillurnar.
Hér settum við nýjan og mun minni vaska, sem fer betur með plássið, nýjan spegil og rúllugardínu fyrir hillur sem voru fyrir því þær geyma ekki fallegustu hlutina á heimilinu, þvottaefni og tuskur og annað þesslegt.
Hér sést hvernig hillurnar voru og mikið sem það er snyrtilegra að geta dregið fyrir og falið þetta bráðnauðsynlega en miður fallega dót.



Svo praktískt og flott hjá ykkur!
SvaraEyðaÞrælsniðugt með rúllugardínuna :)
SvaraEyða