Bastogne kökur eða Lu-kex eins og það er oftast kallað hér eru alveg hrikalega góðar með bæði kaffi og kaldri mjólk. Bestar eru þær heimabakaðar úr íslensku smjöri. Hér er uppskriftin mín. Það er auðvitað smekksatriði hversu mikið og hvaða krydd eru notuð en ég nota alltaf vanillusykur og kanil en aðeins misjafnt hvað ég nota annað.
Bastogne kökur
200 gr smjör
200 gr púðursykur
2 tsk natron
2 tsk vanillusykur
2 tsk kanill
1 tsk negull
1tsk kardimomma
smá salt
40 gr síróp
40 gr hlynsíróp
300 gr hveiti
Allt sett saman í hrærivél og hnoðað saman.
Deiginu skipt í 8 parta.
Hver hluti er rúllaður í pylsu sem er aðeins flött út á plötu. bakað við 180° í ca12 - 15 mín.
Skorið niður um leið og kemur úr ofninum.
ATH. deigið rennur vel út svo það þarf að hafa gott bil á milli pylsanna.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli