Við erum bara fjögur í heimili svo lambalæri og hryggur dugar alveg a.m.k. tvisvar sinnum í matinn. Oft hitum við bara upp kjötið í sósu eða skerum það niður og notum það sem einskonar "roastbeef" á brauð með remulaði og steiktum og eiginmaðurinn fer með það í nesti fram eftir vikunni, Ekki sérlega spennandi í marga daga :)
En oft geri ég líka einhverja rétti úr afgöngunum og er þessi uppskrift svona til að styðjast við. Ég breyti og bæti við alveg eins og hugurinn girnist og líka reyni ég að nota það sem er til og er jafnvel komið á síðasta snúning. Við erum alltaf að reyna að minnka matarsóun á heimilinu og er þessi réttur upplagður til þess.
Í þetta skiptið reyndi ég að mæla allt vel til að geta sett þetta hingað inn. Núna setti ég ananas en hef líka sett epli og sleppt þá ananasinum.
Sósan eða gummsið
1 laukur brytjaður og steiktur
3 tsk. Karrý bætt út í laukinn og látið steikjast smá
Slatti af vatni það fer aðeins eftir hvað maður vill hafa þetta þykka sósu
2 tsk. salt
2 tsk lamb islandia
1 tsk garam masala
1 lambateningur
1 msk. tómatsósa
1 lítil dós ananas (ég mauka hann í mixernum mínum)
1 laukur brytjaður og steiktur
3 tsk. Karrý bætt út í laukinn og látið steikjast smá
Slatti af vatni það fer aðeins eftir hvað maður vill hafa þetta þykka sósu
2 tsk. salt
2 tsk lamb islandia
1 tsk garam masala
1 lambateningur
1 msk. tómatsósa
1 lítil dós ananas (ég mauka hann í mixernum mínum)
Ef sósan er of þunn þykki ég hana
með hveitijafningi.
Í sósuna set ég svo brytjað eldað lambakjöt (
það sem var í afgang af sunnudagssteikinni ).
Sýð þetta vel og vandlega. Tíminn
fer mest eftir því hvað ég er að flýta mér, það er nóg að kjötið sé orðið heitt
í gegn og hveitið búið að fá að sjóða ef það er notað. En best er að sjóða
þetta í allavega 10 mín.
Ef ég á afgang
af rjóma skelli ég honum oft í jafnvel ef það er afgangur af þeyttum rjóma
líka.
Ég smakka þetta líka alltaf til svo uppskrifin er eiginlega bara til að
styðja sig við. Það er líka gott að steikja meira grænmeti t.d. papriku, sveppi,
gulrætur, epli... og hafa í sósunni.
Borið fram með hrísgrjónum og nan-
eða hvítlauksbrauði

Engin ummæli:
Skrifa ummæli