![]() |
| Norsk pizza |
Hér er uppskrift af mjög góðum og mjúkum þykkum pizzabotn sem passar í ofnskúffu.
4dl volgt vatn
3 msk olía
1 pk þurrger
1 tsk salt
9 dl hveiti
Hnoðað saman í hrærivél. látið hefast í ca 45 mín. Flatt út í ofnskúffu með höndunum, pikkað með gaffli.
Ofaná set ég svo kjötsósu svipaða og bolognese nema þykkri. Ég er ekki með uppskrift nota bara tómata, tómatpúrru og svo það grænmeti og krydd sem ég á og langar í hverju sinni, sýð þetta vel og lengi skelli töfrasprotanum í og mauka vel. Bæti svo steiktu hakki í og smakka til. Sulla þessu á hnausþykkan botninn og vel af osti yfir.
Ég er með Pizza stillingu á ofninum mínum þannig að ég set ofninn á 220° og set skúffuna alveg neðst. Þannig eru leiðbeiningarnar með mínum ofni en það er örugglega misjafnt eftir ofnum.
Ef ég ætla að gera venjulega pizzu þá bara einfaldlega helminga ég uppskriftina af botninum og set í ofnskúffuna.



Engin ummæli:
Skrifa ummæli