þriðjudagur, 18. desember 2018

Vanilluís

Vanilluís sem hægt er að leika sér með endalaust, einfaldur og góður. Ég fékk þessa uppskrift á netinu fyrir löngu og eins og með margt annað þá skrifaði ég bara uppskriftina og veit svo ekkert hvaðan hún er. 
En góð er hún 🍨


4 egg
10 msk flórsykur
1 msk vanillusykur
Þeytt vel og lengi

1/2 líter léttþeyttum rjóma
Blandað varlega saman við eggjablönduna.
 
Út í þetta er svo hægt að blanda hverju sem er.

Rommkúlum, lakkrís, toblerone, daim, KitKat o.s.frv.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli