föstudagur, 23. desember 2022

Ananasfrómas ömmu Kiddu

 Þetta er bara eini jólaeftirrétturinn. Ég er reyndar búin að breyta aðeins, set ananassafa úr fernu en nota ekki niðursoðinn ananas eins og er í uppskriftinni hennar ömmu. Bragðið er það sama og yndisleg nostalgía svífur yfir hvert aðfangadagskvöld. Hugurinn er heima í Lækjargötunni lítil hamingjusöm stúlka umvafin kærleik og fegurð.



Ananasfrómas:

10 matarlímsblöð lögð í bleyti í kalt vatn (10-15 mín)

4 egg

125 gr sykur

Þeytt mjög vel saman

2 1/2 dl ananassafi 

blandað varlega út út í egg og sykur þegar búið er að þeyta

1/2 líter rjómi miðlungsþeyttur 

blandað saman við  og passað að allt sé slétt og engir rjómakekkir

Matarlímið undið og brætt yfir vatnsbaði 

þegar matarlímið er alveg bráðið er 

1/2 dl af ananassafa og ca 2 msk af sítrónusafa helt í til að kæla matarlímið.

Matarlímsblöndunni hellt varlega út í soppuna og hrært í allan tímann.

Sett í litlar skálar og ekki gleyma möndlunni 😀


laugardagur, 10. desember 2022

Ídur

Þetta er eiginlega uppskrift sem við mæðgur suðum saman. Okkur langaði í súkkulaðibitakökur með pecanhnetum og fundum danska uppskrift sem við studdumst við. Svo vorum við líka að skoða norskar og sænskar uppskriftir. Eitthvað þurfti að kalla kökurnar og fannst okkur Ídur svo skandinavískt🎄

250 gr smjör
250 gr flórsykur
2 tsk vanillusykur
1/4 tsk salt
1 egg
350 gr hveiti
150 gr rjómasúkkulaði (brytjað eða dropar)
100 gr pecanhnetur (set þær í matvinnsluvél og púlsa smá)

Hnoðað deig, búnar til pylsur og þær kældar.
Pylsurnar skornar niður og rúllað í kúlur aðeins þrýst á kökurnar á plötunni.
Bakað í ca 10 mín á 180°c blástur




Rúgbrauðið besta

laugardagur, 15. október 2022

Kryddbrauð






6 dl haframjöl

6 dl hveiti

4 dl púðursykur

2 tsk kanill

2 tsk negull

2 tsk engifer

4 tsk natron

1/2 tsk salt

6 dl mjólk

2 egg

Allt hrært saman, sett í tvo smurða forma 

Bakað á 180°c í 30-40 mín í miðjum ofni

sunnudagur, 21. ágúst 2022

Maíssalat

 Gott salat með t.d. kjúkling og grillmat

2 dósir maisbaunir

1/2 rauðlaukur smátt saxaður

1 hvítlauksrif marið

smátt graslaukshnippi

1/2 msk hvítvínsedik

2 msk mæjó

1 msk sýrður

smá sykur ca 1/2 tsk

salt og pipar

öllu blandað saman

Heill kjúklingur í Air fryernum

krydda t.d. með:

salti 
pip­ar
reyktu paprikukrydd
hvít­lauks­dufti
or­egano

Setja olíu á kjúklinginn

Nudda kryddinu á 

Stilla á air fryer 180° í 50-60 mín

Kjarnhiti 70-75 í miðri bringu


laugardagur, 7. maí 2022

Bleikja af bestu gerð

 Bleikja sem bragðast vel og er mjög auðvelt að elda

4 bleikjuflök 
2 msk sojasósa
2msk sweet chilisósa
salt og sítrónupipar
sesamfræ og/eða möndluflögur

Flökin sett á plötu eða í form salt og sítrónupipar stráð yfir 

Soja- og chilisósu blandað saman, penslað yfir flökin 

Sesamfræum og/eða möndluflögum stráð yfir

Það er gott að láta þetta bíða kannski klukkutíma eða svo á fiskinum áður en hann er eldaður

en ég man nú yfrleitt ekki eftir að fara að græja matinn fyrr en á seinustu stundu svo það sleppur alveg að láta þetta svo til strax í ofninn 😃

Bakað á 200° í ca 20-30 mín

Kartöflubátar, ferskt salat og köld hvítlaukssósa með.


laugardagur, 11. desember 2021

Crepes


Crepes:

4 1/2 dl hveiti 

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

3 egg

ca 7 dl mjólk                 

1/2 dl olía

Sláið deginu saman eins og venjulegu pönnukökudeigi, það er allt í lagi að hafa þetta samt aðeins þykkara.


sunnudagur, 7. nóvember 2021

Sunnudagseplakakan

Eplakaka

4 epli

75 gr sykur

75 gr púðursykur

150 gr hveiti

150 gr smjör

kanill

Aðferð:

Skerið eplin í litla bita setjið í eldfast form. Dreifið kanil yfir eplin . Sykur, púðursykur, hveiti og smjör hnoðað saman. Deigið mulið yfir eplin og bakað við 180° í ca. 20 mín. Borin fram volg með rjóma.



þriðjudagur, 20. apríl 2021

LummuBlanda

 Já ég veit flestir kalla lummur amerískar pönnukökur en mér finnst flottara að tala um Lummur enda ólst ég upp við það.

Ég veit líka að það er hægt að kaupa tilbúið “pönnukökumix” en það finnst mér ekki spennandi svo ég bara geri mitt sjálf.
Tek með í Fellihýsið eða bústaðaferðirnar. Þetta er svo einfalt og gott að eiga tilbúið.
Þurrefnin sett í krukku heima: egg, mjólk og olía sett samanvið á staðnum.

Þurrefnin
4 Bollar Hveiti
3 msk lyftiduft
3 msk sykur
2 tsk natron
1 tsk salt
Hrært vel saman og gleymt í góðri, þéttri krukku. 
Til að gera lummurnar er settur
1 bolli af þurrefnablöndunni
1 egg
Um 1/2 bolli mjólk
1 msk olía eða brætt smjör

Maður verður að finna út með mjólkina þegar deigið er gert, kannski þarf meira en ½ bolla í 1 bolla af þurru.
Þetta á að vera svolítið þykkra en vöffludeig.
Steikt á pönnu og njóta.

laugardagur, 13. febrúar 2021

Sveitasúpan

Góð og saðsöm súpa sem dugar fyrir a.m.k. 8 manns.

800 gr hakk

2 laukar smátt saxaðir

4 gulrætur smátt saxaðar

1 dós DelMonte pastasósa

140 gr tómatpaste (tvær litlar dósir)

2 lítrar vatn

2 nautateningar

1/2 bolli tómatsósa

1 msk worchestershire sósa

150 gr makkarónur

2 msk origano

2 msk basil

1/2 tsk cayenne pipar

1 tsk púðursykur

Salt 

hvítlaukspipar


Hakk og laukur steikt á pönnu.

Allt sett í pott nema makkarónurnar og látið malla í ca 45 mín ég hef ekki lok á pottinum. Makkarónunum bætt soðið áfram þangað til þær eru til, stendur á pakkanum.

Gott að setja rjómaslettu í lokinn ef maður á en það er ekkert nauðsynlegt.

sunnudagur, 7. febrúar 2021

Kladdan


Sænsku kladdkökurnar eru bragðgóðar og einstaklega einfaldar súkkulaðikökur. Hægt að setja allskonar krem ef maður vill og eru þær líka góðar volgar með ís eða rjóma. 

Hér er ég búin að græja mína útfærslu af kaldri með súkkulaðikremi, eftir að vera búin að prufa þær nokkrar. 



225 g brætt smjör

3 dl sykur

2,5 dl púðursykur

1 msk vanillusykur

3,5 dl hveiti

1 dl kakó

1/4 tsk salt

4 egg

þurrefnin sett í skál og blandað saman, eggjum og bræddu smjöri blandað saman við og allt hrært vel saman. Ég nota písk, en ekki hræra of mikið, þá verður kakan seigari)

Passa að hafa ekki smjörið mjög heitt svo eggin hlaupi ekki.

Sett í 27 cm bökunarform og bakað á 175° í ca 40 mín. 

Líka hægt að setja í eldfast mót og bera fram volga og baka þá kannski aðeins styttra.


Krem:

150 gr súkkulaði

70 gr smjör 

1 msk sýróp

Allt sett saman í pott og brætt saman við lágan hita, passa að sjóða ekki.

Látið kremið kólna svolítið og setið á kalda kökuna.


miðvikudagur, 30. september 2020

Hrísó- Kjötfarsið

                              
 


Stundum langar okkur í farsbollur, þessar sem þarf varla að tyggja. Ég hef ekki hugmynd um hvaðan þessi uppskrift er, en hún hefur líka örugglega eitthvað breyst hjá mér gegnum árin.




  •  400 gr Kindahakk
  •  1 og 1/2 dl rasp 
  •  1 laukur
  •  1 1/2 tsk, salt
  •  1 tsk pipar ( ég nota sítrónupipar, hvítlaukspipar eða bara venjulegan. Allt eftir skapi)
  •  1 egg
  •  1 lambateningur
  •  vatn
Ég set þetta allt saman í matvinnsluvél og set 2-3 dl af vatni.
Ég bæti vatni þangað til þetta er svona svipað og keypta kjötfarsið. Farsa alveg í spað eða þannig viljum við hafa þetta. 
Steiki bollurnar smá á pönnu og brúna þær. Skelli þeim svo í ofn á 180° í ca 30 mín.
Muna að setja bökunarpappír í ofnskúffuna þ.e.a.s. ef þið eruð jafn löt og ég og nennið ekki að hamast með stálullina til að þrífa hana almennilega😀




laugardagur, 12. september 2020

Heinzsósu kjúlli

4 -5 kjúklingabringur skornar í bita og þeim lokað á  vel heitri pönnu.
Settir í eldfast mót

Sósan

1 flaska Heinz Chilisósa
1/4 rjómi
1 msk púðursykur
1/2 tsk salt
1 tsk svartur pipar
2-3 tsk karrý
1 væn tsk Dijon sinnep

Hrært saman.

Hellt yfir kjúklingabitana og inní ofn á 200°c í ca 30- 45 mín eftir hvað bitarnir eru stórir.
Borðað með hrísgrjónum og salati

laugardagur, 18. apríl 2020

Fylling í kanilsnúða

Ég nota alltaf sömu uppskrift í sætt gerbrauð, hvort sem það eru snúðar, hnútar, lengjur eða bolludagsbollurnar. Uppskriftin er héðan https://trinesmatblogg.no/ .
Hér er uppskriftin á íslnesku http://hvittogsveito.blogspot.com/2018/05/fostudagskaffi.html

En þessi færsla er samsagt bara til að halda utanum fyllinguna sem ég er búin að finna út að okkur finnst góð og magnið passar í uppskriftina.

120 gr mjúkt smjör
2 1/2 dl púðursykur
1 msk kanill
1 tsk vanillusykur

Hrært saman og smurt á útflatt deigið. Ég skipti deiginu alltaf í tvo hluta. Ca 40 snúðar.

sunnudagur, 22. mars 2020

Corn flakes Kjúklingur




4 kjúklingabringur
2 egg
1/4 bolli mjólk
4 bollar corn flakes
4 msk olía
3 tsk reykt paprika
2 tsk laukduft
1 msk steinselja
Salt og pipar

Kjúklingabringur skolaðar og þerraðar.
Corn flakes krydd og olía sett í matvinnsluvél og mixað saman.
Eggin og mjólkin pískað saman (ég skelli smá salti og pipar í eggjablönduna).
Svo er kjúllanum dýft í eggjablönduna og svo í corn flakes mulningin.
Raðað í skúffu með bökunarpappír og eldað á 200° í ca hálftíma, undir og yfirhita.
Ég elda kjúkling alltaf meira en minna.



sunnudagur, 1. desember 2019

Talið niður til jóla

Þetta blogg átti nú aldrei að vera matarblogg svo ég ákvað að það væri upplagt að deila með ykkur einni færslu þar sem matur kemur hvergi við sögu nú í upphafi aðventunnar 😊

Oft höfum við verið með dagatalakerti á aðventunni með misjöfnum árangri, þau hafa ýmist lekið niður eða við gleymt að slökkva á þeim nú eða jafnvel gleymt að kveikja. Á vafri mínu um netheima sá ég  hugmynd, þar sem kveikt var á einu litlu jólatréskerti hvern dag. Það er auðvitað hægt að útfæra þetta á alla kanta vegu en ég gerði mína útfærslu svona. 
Ég fann sultukrukku sem rúmaði 24 lítil jólatréskerti. Ég tók "kertaklemmu"svona til að setja á jólatré tók klemmuna neðanaf og límdi á lokið. Málaði svo og setti stjörnu sem ég gerði einhverntíman á leirnámskeiði í spotta og batt um krukkuna. Þetta er einfalt og hægt að leika sér með skreytingar. Ég hlakka til að sjá kertunum fækka í krukkunni eftir því sem líður á aðventuna. Nú er bara að muna að kveikja hvern dag. Vonandi getur einhver nýtt sér þessa hugmynd 🎄🎅




laugardagur, 5. október 2019

Sveitakex

Þetta er frábært kex með smjöri og osti eða bara eitt og sér. Þetta er oft til hér á heimilinu og er það einstaklega þægilegt til að taka með sér í nesti. 
Eins og svo margt annað fann ég þetta kex á einhverri norskri eða sænskri vefsíðu. Þannig að ég á alls ekki heiðurinn af þessari uppskrift en góð er hún.







2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
6 dl hafragrjón
1/2 dl sykur
1 tsk salt
1 msk hjartasalt
150 gr smjör
2 dl súrmjólk
1 dl mjólk
1 egg 
6 dl hveiti

Mylja fræin í kaffikvörn eða matvinnsluvél (ef vill, það þarf ekki)
blanda öllu saman.
Deigið flatt þunnt út, passa að hafa nóg af hveiti svo ekki klístrist við borðið.
Stungnar út kökur.
Bakað 200°c á undir og yfirhita í 15-20 mín eða þar til þær eru gullinbrúnar


sunnudagur, 11. ágúst 2019

Pönnukökur frú Hrísó

Tengdamamma mín bakar heimsins bestu pönnukökur, það er bara þannig.
Ég hef oft reynt að fá uppskriftina hjá henni en sá galli er að hún bakar pönnukökur alls ekki eftir neinni uppskrift. Hún notar svona "slurk og slatta"
Ég veit hvaða inniheldsefni hún notar. Með þá vitneskju hef ég reynt að gera almennilegar pönnukökur lengi. Mér dettur ekki í hug að ég muni nokkru sinni gera bestu pönnsur í heimi. Ég er kannski komin svolítið nálægt almennilegum með þessari uppskrift. Ég get nefnilega ekki gert "slurk og slatta" bollamál, desilítramál, vigt og mæliskeiðar er það sem ég nota þegar ég er í eldhúsinu allavega alltaf þegar ég baka. 
EN með því að bæta við, minnka o.s.frv í a.m.k 20 ár er þetta niðurstaðan. 
Tengdó notar hvorki vanillusykur eða sítrónudropa en það eru bara bragðefni sem ekkert nauðsynlegt er að hafa og ég nota ekkert alltaf.

Pönnsur
3 bollar hveiti
1/8 tsk hjartarsalt
1 tsk vanillusykur
4 bollar mjólk
30 gr brætt smjör
2 egg
1/4 tsk sítrónudropar

Um 30 stk.

föstudagur, 9. ágúst 2019

Pizzasósa

Ekkert varið í keypta pizzasósu þegar maður er búinn að smakka heimagerðar.
Þessi er æði.

500 ml Passata
2 msk oregano
2 msk ítalskt krydd
1 tsk laukduft
1/2 tsk hvítlaukssalt
1/2 tsk hvítlaukspipar
1 tsk sykur, hunang, sýróp eða einhver sæta samt bara eitthvað eitt af þessu :)
nokkrir snúningar úr piparkvörninni

Allt hrært saman. Það er eiginlega næstum nauðsynlegt að gera þetta a.m.k. klukkutíma fyrir notkun til að þetta nái að jafna sig.