sunnudagur, 1. desember 2019

Talið niður til jóla

Þetta blogg átti nú aldrei að vera matarblogg svo ég ákvað að það væri upplagt að deila með ykkur einni færslu þar sem matur kemur hvergi við sögu nú í upphafi aðventunnar 😊

Oft höfum við verið með dagatalakerti á aðventunni með misjöfnum árangri, þau hafa ýmist lekið niður eða við gleymt að slökkva á þeim nú eða jafnvel gleymt að kveikja. Á vafri mínu um netheima sá ég  hugmynd, þar sem kveikt var á einu litlu jólatréskerti hvern dag. Það er auðvitað hægt að útfæra þetta á alla kanta vegu en ég gerði mína útfærslu svona. 
Ég fann sultukrukku sem rúmaði 24 lítil jólatréskerti. Ég tók "kertaklemmu"svona til að setja á jólatré tók klemmuna neðanaf og límdi á lokið. Málaði svo og setti stjörnu sem ég gerði einhverntíman á leirnámskeiði í spotta og batt um krukkuna. Þetta er einfalt og hægt að leika sér með skreytingar. Ég hlakka til að sjá kertunum fækka í krukkunni eftir því sem líður á aðventuna. Nú er bara að muna að kveikja hvern dag. Vonandi getur einhver nýtt sér þessa hugmynd 🎄🎅




Engin ummæli:

Skrifa ummæli