4 kjúklingabringur
2 egg
1/4 bolli mjólk
4 bollar corn flakes
4 msk olía
3 tsk reykt paprika
2 tsk laukduft
1 msk steinselja
Salt og pipar
Kjúklingabringur skolaðar og þerraðar.
Eggin og mjólkin pískað saman (ég skelli smá salti og pipar í eggjablönduna).
Svo er kjúllanum dýft í eggjablönduna og svo í corn flakes
mulningin.
Raðað í skúffu með bökunarpappír og eldað á 200° í ca
hálftíma, undir og yfirhita.
Ég elda kjúkling alltaf meira en minna.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli