sunnudagur, 11. ágúst 2019

Pönnukökur frú Hrísó

Tengdamamma mín bakar heimsins bestu pönnukökur, það er bara þannig.
Ég hef oft reynt að fá uppskriftina hjá henni en sá galli er að hún bakar pönnukökur alls ekki eftir neinni uppskrift. Hún notar svona "slurk og slatta"
Ég veit hvaða inniheldsefni hún notar. Með þá vitneskju hef ég reynt að gera almennilegar pönnukökur lengi. Mér dettur ekki í hug að ég muni nokkru sinni gera bestu pönnsur í heimi. Ég er kannski komin svolítið nálægt almennilegum með þessari uppskrift. Ég get nefnilega ekki gert "slurk og slatta" bollamál, desilítramál, vigt og mæliskeiðar er það sem ég nota þegar ég er í eldhúsinu allavega alltaf þegar ég baka. 
EN með því að bæta við, minnka o.s.frv í a.m.k 20 ár er þetta niðurstaðan. 
Tengdó notar hvorki vanillusykur eða sítrónudropa en það eru bara bragðefni sem ekkert nauðsynlegt er að hafa og ég nota ekkert alltaf.

Pönnsur
3 bollar hveiti
1/8 tsk hjartarsalt
1 tsk vanillusykur
4 bollar mjólk
30 gr brætt smjör
2 egg
1/4 tsk sítrónudropar

Um 30 stk.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli