Sænsku kladdkökurnar eru bragðgóðar og einstaklega einfaldar súkkulaðikökur. Hægt að setja allskonar krem ef maður vill og eru þær líka góðar volgar með ís eða rjóma.
Hér er ég búin að græja mína útfærslu af kaldri með súkkulaðikremi, eftir að vera búin að prufa þær nokkrar.
225 g brætt smjör
3 dl sykur
2,5 dl púðursykur
1 msk vanillusykur
3,5 dl hveiti
1 dl kakó
1/4 tsk salt
4 egg
þurrefnin sett í skál og blandað saman, eggjum og bræddu smjöri blandað saman við og allt hrært vel saman. Ég nota písk, en ekki hræra of mikið, þá verður kakan seigari)
Passa að hafa ekki smjörið mjög heitt svo eggin hlaupi ekki.
Sett í 27 cm bökunarform og bakað á 175° í ca 40 mín.
Líka hægt að setja í eldfast mót og bera fram volga og baka þá kannski aðeins styttra.
Krem:
150 gr súkkulaði
70 gr smjör
1 msk sýróp
Allt sett saman í pott og brætt saman við lágan hita, passa að sjóða ekki.
Látið kremið kólna svolítið og setið á kalda kökuna.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli