Stundum langar okkur í farsbollur, þessar sem þarf varla að tyggja. Ég hef ekki hugmynd um hvaðan þessi uppskrift er, en hún hefur líka örugglega eitthvað breyst hjá mér gegnum árin.
- 400 gr Kindahakk
- 1 og 1/2 dl rasp
- 1 laukur
- 1 1/2 tsk, salt
- 1 tsk pipar ( ég nota sítrónupipar, hvítlaukspipar eða bara venjulegan. Allt eftir skapi)
- 1 egg
- 1 lambateningur
- vatn
Ég set þetta allt saman í matvinnsluvél og set 2-3 dl af vatni.Ég bæti vatni þangað til þetta er svona svipað og keypta kjötfarsið. Farsa alveg í spað eða þannig viljum við hafa þetta.Steiki bollurnar smá á pönnu og brúna þær. Skelli þeim svo í ofn á 180° í ca 30 mín.Muna að setja bökunarpappír í ofnskúffuna þ.e.a.s. ef þið eruð jafn löt og ég og nennið ekki að hamast með stálullina til að þrífa hana almennilega😀

Engin ummæli:
Skrifa ummæli