laugardagur, 13. febrúar 2021

Sveitasúpan

Góð og saðsöm súpa sem dugar fyrir a.m.k. 8 manns.

800 gr hakk

2 laukar smátt saxaðir

4 gulrætur smátt saxaðar

1 dós DelMonte pastasósa

140 gr tómatpaste (tvær litlar dósir)

2 lítrar vatn

2 nautateningar

1/2 bolli tómatsósa

1 msk worchestershire sósa

150 gr makkarónur

2 msk origano

2 msk basil

1/2 tsk cayenne pipar

1 tsk púðursykur

Salt 

hvítlaukspipar


Hakk og laukur steikt á pönnu.

Allt sett í pott nema makkarónurnar og látið malla í ca 45 mín ég hef ekki lok á pottinum. Makkarónunum bætt soðið áfram þangað til þær eru til, stendur á pakkanum.

Gott að setja rjómaslettu í lokinn ef maður á en það er ekkert nauðsynlegt.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli