Ég nota alltaf sömu uppskrift í sætt gerbrauð, hvort sem það eru snúðar, hnútar, lengjur eða bolludagsbollurnar. Uppskriftin er héðan https://trinesmatblogg.no/ .
Hér er uppskriftin á íslnesku http://hvittogsveito.blogspot.com/2018/05/fostudagskaffi.html
En þessi færsla er samsagt bara til að halda utanum fyllinguna sem ég er búin að finna út að okkur finnst góð og magnið passar í uppskriftina.
120 gr mjúkt smjör
2 1/2 dl púðursykur
1 msk kanill
1 tsk vanillusykur
Hrært saman og smurt á útflatt deigið. Ég skipti deiginu alltaf í tvo hluta. Ca 40 snúðar.
laugardagur, 18. apríl 2020
sunnudagur, 22. mars 2020
Corn flakes Kjúklingur
4 kjúklingabringur
2 egg
1/4 bolli mjólk
4 bollar corn flakes
4 msk olía
3 tsk reykt paprika
2 tsk laukduft
1 msk steinselja
Salt og pipar
Kjúklingabringur skolaðar og þerraðar.
Eggin og mjólkin pískað saman (ég skelli smá salti og pipar í eggjablönduna).
Svo er kjúllanum dýft í eggjablönduna og svo í corn flakes
mulningin.
Raðað í skúffu með bökunarpappír og eldað á 200° í ca
hálftíma, undir og yfirhita.
Ég elda kjúkling alltaf meira en minna.
sunnudagur, 1. desember 2019
Talið niður til jóla
Þetta blogg átti nú aldrei að vera matarblogg svo ég ákvað að það væri upplagt að deila með ykkur einni færslu þar sem matur kemur hvergi við sögu nú í upphafi aðventunnar 😊
Oft höfum við verið með dagatalakerti á aðventunni með misjöfnum árangri, þau hafa ýmist lekið niður eða við gleymt að slökkva á þeim nú eða jafnvel gleymt að kveikja. Á vafri mínu um netheima sá ég hugmynd, þar sem kveikt var á einu litlu jólatréskerti hvern dag. Það er auðvitað hægt að útfæra þetta á alla kanta vegu en ég gerði mína útfærslu svona. Ég fann sultukrukku sem rúmaði 24 lítil jólatréskerti. Ég tók "kertaklemmu"svona til að setja á jólatré tók klemmuna neðanaf og límdi á lokið. Málaði svo og setti stjörnu sem ég gerði einhverntíman á leirnámskeiði í spotta og batt um krukkuna. Þetta er einfalt og hægt að leika sér með skreytingar. Ég hlakka til að sjá kertunum fækka í krukkunni eftir því sem líður á aðventuna. Nú er bara að muna að kveikja hvern dag. Vonandi getur einhver nýtt sér þessa hugmynd 🎄🎅
laugardagur, 5. október 2019
Sveitakex
Þetta er frábært kex með smjöri og osti eða bara eitt og sér. Þetta er oft til hér á heimilinu og er það einstaklega þægilegt til að taka með sér í nesti. Eins og svo margt annað fann ég þetta kex á einhverri norskri eða sænskri vefsíðu. Þannig að ég á alls ekki heiðurinn af þessari uppskrift en góð er hún.
2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
6 dl hafragrjón
1/2 dl sykur
1 tsk salt
1 msk hjartasalt
150 gr smjör
2 dl súrmjólk
1 dl mjólk
1 egg
6 dl hveiti
Mylja fræin í kaffikvörn eða matvinnsluvél (ef vill, það þarf ekki)
blanda öllu saman.
Deigið flatt þunnt út, passa að hafa nóg af hveiti svo ekki klístrist við borðið.
Stungnar út kökur.
Bakað 200°c á undir og yfirhita í 15-20 mín eða þar til þær eru gullinbrúnar
sunnudagur, 11. ágúst 2019
Pönnukökur frú Hrísó
Tengdamamma mín bakar heimsins bestu pönnukökur, það er bara þannig.
Ég hef oft reynt að fá uppskriftina hjá henni en sá galli er að hún bakar pönnukökur alls ekki eftir neinni uppskrift. Hún notar svona "slurk og slatta"
Ég veit hvaða inniheldsefni hún notar. Með þá vitneskju hef ég reynt að gera almennilegar pönnukökur lengi. Mér dettur ekki í hug að ég muni nokkru sinni gera bestu pönnsur í heimi. Ég er kannski komin svolítið nálægt almennilegum með þessari uppskrift. Ég get nefnilega ekki gert "slurk og slatta" bollamál, desilítramál, vigt og mæliskeiðar er það sem ég nota þegar ég er í eldhúsinu allavega alltaf þegar ég baka.
EN með því að bæta við, minnka o.s.frv í a.m.k 20 ár er þetta niðurstaðan.
Tengdó notar hvorki vanillusykur eða sítrónudropa en það eru bara bragðefni sem ekkert nauðsynlegt er að hafa og ég nota ekkert alltaf.
Pönnsur
3 bollar hveiti
1/8 tsk hjartarsalt
1 tsk vanillusykur
4 bollar mjólk
30 gr brætt smjör
2 egg
1/4 tsk sítrónudropar

Um 30 stk.
föstudagur, 9. ágúst 2019
Pizzasósa
Ekkert varið í keypta pizzasósu þegar maður er búinn að smakka heimagerðar.
Þessi er æði.
500 ml Passata
2 msk oregano
2 msk ítalskt krydd
1 tsk laukduft
1/2 tsk hvítlaukssalt
1/2 tsk hvítlaukspipar
1 tsk sykur, hunang, sýróp eða einhver sæta samt bara eitthvað eitt af þessu :)
nokkrir snúningar úr piparkvörninni
Allt hrært saman. Það er eiginlega næstum nauðsynlegt að gera þetta a.m.k. klukkutíma fyrir notkun til að þetta nái að jafna sig.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)