sunnudagur, 7. nóvember 2021

Sunnudagseplakakan

Eplakaka

4 epli

75 gr sykur

75 gr púðursykur

150 gr hveiti

150 gr smjör

kanill

Aðferð:

Skerið eplin í litla bita setjið í eldfast form. Dreifið kanil yfir eplin . Sykur, púðursykur, hveiti og smjör hnoðað saman. Deigið mulið yfir eplin og bakað við 180° í ca. 20 mín. Borin fram volg með rjóma.



þriðjudagur, 20. apríl 2021

LummuBlanda

 Já ég veit flestir kalla lummur amerískar pönnukökur en mér finnst flottara að tala um Lummur enda ólst ég upp við það.

Ég veit líka að það er hægt að kaupa tilbúið “pönnukökumix” en það finnst mér ekki spennandi svo ég bara geri mitt sjálf.
Tek með í Fellihýsið eða bústaðaferðirnar. Þetta er svo einfalt og gott að eiga tilbúið.
Þurrefnin sett í krukku heima: egg, mjólk og olía sett samanvið á staðnum.

Þurrefnin
4 Bollar Hveiti
3 msk lyftiduft
3 msk sykur
2 tsk natron
1 tsk salt
Hrært vel saman og gleymt í góðri, þéttri krukku. 
Til að gera lummurnar er settur
1 bolli af þurrefnablöndunni
1 egg
Um 1/2 bolli mjólk
1 msk olía eða brætt smjör

Maður verður að finna út með mjólkina þegar deigið er gert, kannski þarf meira en ½ bolla í 1 bolla af þurru.
Þetta á að vera svolítið þykkra en vöffludeig.
Steikt á pönnu og njóta.

laugardagur, 13. febrúar 2021

Sveitasúpan

Góð og saðsöm súpa sem dugar fyrir a.m.k. 8 manns.

800 gr hakk

2 laukar smátt saxaðir

4 gulrætur smátt saxaðar

1 dós DelMonte pastasósa

140 gr tómatpaste (tvær litlar dósir)

2 lítrar vatn

2 nautateningar

1/2 bolli tómatsósa

1 msk worchestershire sósa

150 gr makkarónur

2 msk origano

2 msk basil

1/2 tsk cayenne pipar

1 tsk púðursykur

Salt 

hvítlaukspipar


Hakk og laukur steikt á pönnu.

Allt sett í pott nema makkarónurnar og látið malla í ca 45 mín ég hef ekki lok á pottinum. Makkarónunum bætt soðið áfram þangað til þær eru til, stendur á pakkanum.

Gott að setja rjómaslettu í lokinn ef maður á en það er ekkert nauðsynlegt.

sunnudagur, 7. febrúar 2021

Kladdan


Sænsku kladdkökurnar eru bragðgóðar og einstaklega einfaldar súkkulaðikökur. Hægt að setja allskonar krem ef maður vill og eru þær líka góðar volgar með ís eða rjóma. 

Hér er ég búin að græja mína útfærslu af kaldri með súkkulaðikremi, eftir að vera búin að prufa þær nokkrar. 



225 g brætt smjör

3 dl sykur

2,5 dl púðursykur

1 msk vanillusykur

3,5 dl hveiti

1 dl kakó

1/4 tsk salt

4 egg

þurrefnin sett í skál og blandað saman, eggjum og bræddu smjöri blandað saman við og allt hrært vel saman. Ég nota písk, en ekki hræra of mikið, þá verður kakan seigari)

Passa að hafa ekki smjörið mjög heitt svo eggin hlaupi ekki.

Sett í 27 cm bökunarform og bakað á 175° í ca 40 mín. 

Líka hægt að setja í eldfast mót og bera fram volga og baka þá kannski aðeins styttra.


Krem:

150 gr súkkulaði

70 gr smjör 

1 msk sýróp

Allt sett saman í pott og brætt saman við lágan hita, passa að sjóða ekki.

Látið kremið kólna svolítið og setið á kalda kökuna.


miðvikudagur, 30. september 2020

Hrísó- Kjötfarsið

                              
 


Stundum langar okkur í farsbollur, þessar sem þarf varla að tyggja. Ég hef ekki hugmynd um hvaðan þessi uppskrift er, en hún hefur líka örugglega eitthvað breyst hjá mér gegnum árin.




  •  400 gr Kindahakk
  •  1 og 1/2 dl rasp 
  •  1 laukur
  •  1 1/2 tsk, salt
  •  1 tsk pipar ( ég nota sítrónupipar, hvítlaukspipar eða bara venjulegan. Allt eftir skapi)
  •  1 egg
  •  1 lambateningur
  •  vatn
Ég set þetta allt saman í matvinnsluvél og set 2-3 dl af vatni.
Ég bæti vatni þangað til þetta er svona svipað og keypta kjötfarsið. Farsa alveg í spað eða þannig viljum við hafa þetta. 
Steiki bollurnar smá á pönnu og brúna þær. Skelli þeim svo í ofn á 180° í ca 30 mín.
Muna að setja bökunarpappír í ofnskúffuna þ.e.a.s. ef þið eruð jafn löt og ég og nennið ekki að hamast með stálullina til að þrífa hana almennilega😀




laugardagur, 12. september 2020

Heinzsósu kjúlli

4 -5 kjúklingabringur skornar í bita og þeim lokað á  vel heitri pönnu.
Settir í eldfast mót

Sósan

1 flaska Heinz Chilisósa
1/4 rjómi
1 msk púðursykur
1/2 tsk salt
1 tsk svartur pipar
2-3 tsk karrý
1 væn tsk Dijon sinnep

Hrært saman.

Hellt yfir kjúklingabitana og inní ofn á 200°c í ca 30- 45 mín eftir hvað bitarnir eru stórir.
Borðað með hrísgrjónum og salati