mánudagur, 22. júlí 2019

Karrý pastasalat


Dásamlega gott kalt pastasalat

Borðum það oft sem máltíð á sumrin með góðu brauði og salati þá nota ég kjúkling.
En svo er líka frábært að nota skinku og bera þetta fram með snittubrauði eða kexi á veisluborði.
Þegar ég geri matarsalat nota ég "farfalle" eða "fusilli" en litlar "macaroni" í brauðsalat.

Uppskrift
1 dós sýrður rjómi
200 gr mæjónes
1 msk mangó chutney
1 msk karrý
salt og pipar
1 dl matreiðslurjómi

2 epli
1 poki úrbeinuð kjúklingalæri ( þegar þetta er máltíð)
1 pk skinka (þegar þetta er salat á brauð)
ca 5 cm bútur af púrrulauk
100 gr pasta

Kjúklingurinn steiktur, látinn kólna og skorinn í frekar litla bita. Epli og laukur skorin í litla bita. Æi svo er bara öllu gumsað saman það kunna þetta allir 😊

miðvikudagur, 3. júlí 2019

Djúsí skúffukaka

Mjúk og djúsí skúffukaka sem passar í stóra ofnskúffu með geggjuðu kaffikremi




Botn

250 g smjör
400 gr sykur
4 egg
6 msk kakó
2 tsk vanillusykur
3 tsk natron
450 g hveiti
6 dl súrmjólk

Smjörið er brætt og passað að það sé ekki heitt
Sykur og egg þeytt vel saman og smjörinu blandað við hræruna.
Þurrefnunum blandað saman.
þurrefnin og súrmjólkin sett í hræruna
Bakað við 180°í ca 30 mín á undir og yfirhita

Krem

Þessi uppskrift passar á stóra skúffuköku. Ef ég ætla ekki að hafa kaffibragð sleppi ég einfaldlega kaffinu og set heitt vatn í staðinn. Þá er þetta bara venjulegt skúffukökukrem.

200 gr smjör
500 gr flórsykur
þeytt saman

6 msk kakó
2 tsk vanillusykur
1/2 dl rjómi
6 msk lagað kaffi
bætt við

allt þeytt mjög vel saman


laugardagur, 29. júní 2019

Sjúllaða sítrónukakan

Hrikalega góð og einföld sítrónukaka. 



Botn
150 gr smjör
0,5 dl sítrónusafi 
2 dl sykur
1,5 dl hveiti
2 tsk vanillusykur
2 egg

Smjörið er brætt og allt hitt sett út í passa bara að smjörið sé ekki of heitt.
Hrært saman með píski (kannski er hægt að nota eitthvað annað ég er svo vanaföst😉)
Sett í lítinn hringform og bakað við 170° á undir og yfirhita í ca 25 mín. Ég nota alltaf prjón til að gá hvort er bakað.
Eflaust er betra að kreista sítrónu til að fá safann en það er ekki séns að ég nenni að vesenast í því svo ég nota alltaf sítrónusafann í glerflöskunum held að hann sér frá Himneskt. Hann er líka góður út í vatn svo ég á hann yfirleitt til.
Látið kökuna kólna alveg áður en kremið er sett yfir

Krem
50 g smjör, við stofuhita
65 g rjómaostur við stofuhita
85 g flórsykur
1/4 tsk vanillusykur
1/4 tsk sítrónusafi
1/4 msk rjómi

Smjör og rjómaostur pískaður saman svona létt og ljóst.
Setjið afganginn saman við og þeytið allt vel saman 
Smyrjið á botninn.
Þessi er betri ef hún fær að standa svolítið, upplagt að gera hana degi áður en á að borða hana.

sunnudagur, 23. júní 2019

Kryddblanda á kjúkling



Kryddblanda sem er góð á kjúkling. Svo er gott að setja góða snúninga úr piparkvörninni yfir fyrir eldun.


1/4 bolli púðursykur
1 msk salt
2 msk hvítlauksduft
2 msk laukduft
1 msk reykt paprika
1 msk origano
1 msk steinselja
1 tsk timian
1 tsk rósmarín
1/2 tsk chili

sunnudagur, 24. mars 2019

Morgunbrauð í potti

Einfalt og gott með morgunkaffinu um helgar



Morgunbrauð 

500 gr af mjöli og fræjum samanlagt
1 tsk þurrger
1 tsk salt
4 dl volgt vatn

Allt hrært saman en ekki hnoðað, plastfilma sett yfir skálina til að halda rakanum. Látið hefast í ca 8 tíma við stofuhita.

Pottur sem má fara í ofn og lokið líka er það sem bakað er í.

Ofninn stilltur á 230° og potturinn settur inní og látinn hitna vel, ca 10 mín

Bökunarpappír settur á borð og hveiti stráð yfir hann, deiginu hellt á pappírinn og brauðið mótað, ekki hnoðað samt.

Skellt í sjóðheitan pottinn, passa að brenna sig ekki og bakað í 30 mín með loki og 10 mín með ekkert lok.

laugardagur, 23. mars 2019

Hversdagsbrauð


Þetta er mjög gott og ódýrt brauð, finnst það kannski svipa einna mest til "heimilisbrauðsins" sem hægt er að kaupa, af þeim brauðum sem ég hef bakað. Þetta er ekki gróft brauð en auðvitað er hægt að setja korn og grófara útí og minnka þá hveitið. Stundum langar okkur í minna gróft t.d. til að rista og búa til heitar samlokur og er þetta brauð tilvalið í það. 



Hversdagsbrauð (heimilisbrauðið)


🌸 ½ líter volgt vatn

🌸 1 ½ dl matarolía

🌸 1/2 msk sýróp (t.d. agave)

🌸 1/2 bréf þurrger eða 2-3 tsk

🌸 1 dl hveitiklíð

🌸 1/2 msk salt

🌸 u.þ.b. 1 kg hveiti 




Ég set alltaf hveitið seinast og met hversu mikið ég vil hafa. Þannig að það klístrist ekki við skálina en samt ekki farið að þorna.
Ég hnoða alltaf gerdeig í hrærivél og hnoða lengi ca 10 - 15 mín.
Látið forhefast í a.m.k. klukkustund. Mótað og hefað aftur í a.m.k. 45 mín.

Bakað á 220°í miðjum ofni á undir og yfirhita
Ca 30 - 40 mín.