laugardagur, 29. júní 2019

Sjúllaða sítrónukakan

Hrikalega góð og einföld sítrónukaka. 



Botn
150 gr smjör
0,5 dl sítrónusafi 
2 dl sykur
1,5 dl hveiti
2 tsk vanillusykur
2 egg

Smjörið er brætt og allt hitt sett út í passa bara að smjörið sé ekki of heitt.
Hrært saman með píski (kannski er hægt að nota eitthvað annað ég er svo vanaföst😉)
Sett í lítinn hringform og bakað við 170° á undir og yfirhita í ca 25 mín. Ég nota alltaf prjón til að gá hvort er bakað.
Eflaust er betra að kreista sítrónu til að fá safann en það er ekki séns að ég nenni að vesenast í því svo ég nota alltaf sítrónusafann í glerflöskunum held að hann sér frá Himneskt. Hann er líka góður út í vatn svo ég á hann yfirleitt til.
Látið kökuna kólna alveg áður en kremið er sett yfir

Krem
50 g smjör, við stofuhita
65 g rjómaostur við stofuhita
85 g flórsykur
1/4 tsk vanillusykur
1/4 tsk sítrónusafi
1/4 msk rjómi

Smjör og rjómaostur pískaður saman svona létt og ljóst.
Setjið afganginn saman við og þeytið allt vel saman 
Smyrjið á botninn.
Þessi er betri ef hún fær að standa svolítið, upplagt að gera hana degi áður en á að borða hana.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli