mánudagur, 22. júlí 2019
Karrý pastasalat
Dásamlega gott kalt pastasalat
Borðum það oft sem máltíð á sumrin með góðu brauði og salati þá nota ég kjúkling.
En svo er líka frábært að nota skinku og bera þetta fram með snittubrauði eða kexi á veisluborði.
Þegar ég geri matarsalat nota ég "farfalle" eða "fusilli" en litlar "macaroni" í brauðsalat.
Uppskrift
1 dós sýrður rjómi
200 gr mæjónes
1 msk mangó chutney
1 msk karrý
salt og pipar
1 dl matreiðslurjómi
2 epli
1 poki úrbeinuð kjúklingalæri ( þegar þetta er máltíð)
1 pk skinka (þegar þetta er salat á brauð)
ca 5 cm bútur af púrrulauk
100 gr pasta
Kjúklingurinn steiktur, látinn kólna og skorinn í frekar litla bita. Epli og laukur skorin í litla bita. Æi svo er bara öllu gumsað saman það kunna þetta allir 😊
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli