Dóttirin keypt sér spjaldtölvu á dögunum og ætlaði að fá sér poka utanum hana, en það fannst enginn sem henni fannst fallegur, þeir voru svo klossaðir og ódömulegir, svo ég dreif mig í að hekla einn og er daman himinsæl, ég notaði enga uppskrift heldur brallaði bara saman eftir myndum af netinu en hér er útkoman...

Flottur poki, alltaf gaman að hekkla upp úr sér þegar það tekst svona vel! En hvaða garn notaðir þú?
SvaraEyðaKv. Hanna
Sæl Hanna og kærar þakkir fyrir ummælin, svo gaman að sjá hverjir koma, en hvíta garnið er bómullargarn úr Rúmfatalagernum,
Eyðahttp://www.kingcole.co.uk/knitting-yarns/dk/cottonsoft-dk.html
En það bleika og bláa er mandarin petit.
Bestu kveðjur Guðný Björg :)
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
SvaraEyðaæji hvað þessi er sætur, rakst á bloggið þitt í gegnum Rósir og rjómi. er sjálf með blogg, bæði heimilis og uppskriftar. Endilega kíktu :)
SvaraEyðaverður gaman að fylgjast með þér :)
Var bara að sjá þetta núna :) takk fyrir að kvitta ég skoða sko bloggið þitt vel og vandlega :)
Eyða