Ég keypti mér svo skemmtilegt garn í Skagfirðingabúð um daginn þegar ég var á ferðalagi í Skagafirði. Þetta er undurmjúkt bómullargarn með svo fallegum bleikum tónum í bland við hvítt. Ég ákvað að gera glasamottur og kemur þetta skemmtilega út og er engin eins :) Vinkona mín kom svo um daginn með kertakrukku sem hún hafði keypt og ég varð bara að prufa að gera svipað og kom það ágætlega út.
Ofur sætt hjá þér, vá!!!
SvaraEyðaKærar þakkir Kikka mín :) finnst ár og dagar frá því við höfum hittst, langar að bæta úr því :)
Eyða