föstudagur, 2. nóvember 2012

Vetur konungur

Jæja nú er orðið ansi langt síðan síðast, ég kem samt reglulega hingað inn til að fara í "heimsókn" af þessari síðu inná mínar uppáhalds :) Haustið hefur verið ljúft og áfallalaust hér á bæ, en verkefnin mörg og krefjandi svo myndataka og föndurdútl hefur setið á hakanum :) En nú hefur veturinn boðað komu sína með ansi miklum hvelli, svo miklum að hér í Fnjóskadalnum erum við föst heima hjá okkur, vinnu og skóla hefur ekki verið hægt að fara í núna í 2 daga og er snjórinn orðinn frekar mikill, ég smellti af nokkrum myndum gegnum rúðurnar svona að gamni.






Í haust kom svo nýr íbúi í stofuna okkar, en þá fengum við þetta gamla fallega orgel til geymslu.
Vonum að því líði vel hér hjá okkur :)



Þessar fallegu rósið færði svo eiginmaðurinn mér í tílefni 20 ára sambandsafmælis okkar.

Vona að það verði ekki svona langt þangað til næst og takk allir sem líta við :D



3 ummæli: