miðvikudagur, 18. júlí 2012

♥ Sumarbloggpartý ♥

Þegar Stína Sæm blés til sumarbloggspartýs var ég ákveðin í að vera með, alltaf svo gaman í partýum :) Hér koma nokkrar myndir af mínum sæluhornum, þetta er samt bara annað sumarið okkar hér þannig að ekki er allt orðið eins og það getur best verið, þetta kemur smá saman. Og verður gaman að sjá hvernig þetta verður eftir nokkur ár, reyndar er ég eins og margir aðrir, mjög hreyfanleg með uppstillingar og eiga afar fáir hlutir fastan stað hér á bæ, mér finnst svo gaman að breyta :) 
Hér er búið að stilla upp fyrir fjölskyldugrill,
sést svona ca hvernig pallurinn er.


Grillaðstaðan, sem á vonandi eftir að batna, okkur langar í hlaðið "garðeldhús"
með kolagrilli og góðri aðstöðu

Kósýhorn, gott að lesa í skugganum








Þetta er sko góð fjárfesting, kannski ekkert fyrir augað en notaleg er hún.

Morgunbollinn er málið hér.





Svona er lífið hér :)
Sumarkveðja 


 

7 ummæli:

  1. Alla Malla hvad thetta er saett hja ther! Hvita hillan er dasemd svo eg tali nu ekki um kosyhornid thar sem haegt er ad lesa og drekka hvitt a faeti!
    Ma eg koma i heimsokn?

    SvaraEyða
  2. Algjört æði hjá þér vinkona eins og alltaf! Snilldarnotkun á gömlu mjólkurbrúsunum og trjábolunum, ég elska hvíta hilluborðið (já ég veit ég hef sagt það áður :)) og mikið er það flott hugmynd að nýta svona partýtjald utan um buslulaugina! Verð annars að fá að spyrja hvaða barki standi þarna út úr lauginni..? Þetta er svipuð týpa sýnist mér og okkar en enginn barki þar...:)
    Svo skemmir nú veðursældin í þinni sveit ekki fyrir mín kæra og skjólið á pallinum, bara snilld :)

    SvaraEyða
  3. Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

    SvaraEyða
  4. Deco Chick kærar þakkir og vertu velkomin ;)

    Takk Kikka mín, ég held að þessi buslulaug sé alveg eins og ykkar nema minni, en þetta fylgdi með og er einhverskonar hreinsigræja sem maður setur í samband. Ég veit ekki hversu mikið gagn hún gerir, er þetta er svo mikil snilld þessi laug :D

    SvaraEyða
  5. Takk Guðny fyrir að koma og vera með okkur í sumarpartýinu. e´g sé nú að það er svo sannarlega hægt að halda veglegt party hjá þér. Æðislegt að sjá svona hillu úti í garði, og svo ótalmargt fallegt hjá þér. Ég er ægilega skotin í öllum mjólkurbrúsunum og runnanum í balanum hjá grillinu, gerir svo skemmtilega gamla stemningu með fínu hillunni og uppábúna sumarrúminu. Kanski maður næli sér í hvíta fallega hillu til að setja á svalirnar.. er alveg að sjá það fyrir mér :)
    Takk aftur og innilega fyrir að vera með.
    Sumarkveðja og knús að sunnann
    Stína

    SvaraEyða
  6. hæ Guðný en gaman að þú kíktir við hjá mér :)og takk fyrir kommentið. Það er mjög gaman að kíkja á þinn blogg, svo margt sætt sem þú ert að gera :)
    Bestu kveðjur
    Sif

    SvaraEyða
  7. Takk Stína mín fyrir að halda partýið, Það hafa nú margir öfundað mig af brúsunum gömlu enda eru þeir æði :)
    Kveðja úr Fnjóskadalnum :)

    SvaraEyða