þriðjudagur, 20. mars 2012

20 mars...

Jæja þá er ég að hugsa um að skella nokkrum myndum hingað inn á bloggið. Ég gerði svo sæta kúlu úr frauðplastkúlu og efnisbútum og svo skellti ég dásamlega fallegri undirskál sem ég var svo heppin að ná í á 100 kr í Fríðu frænku á gamlan kertastjaka sem ég er búin að eiga frá því ég byrjaði að búa, þetta kemur bara ljómandi vel út :)







♥ Þessi diskur er svo fallegur ♥




Tilvalið að setja úrið og skartið á diskinn fyrir háttinn :)


Mikið væri nú gaman að fá smá komment frá þeim sem lesa, það er svo gaman hvað margir kíkja hingað inn og enn meira gaman að sjá hverjir það eru ;)

4 ummæli:

  1. Flottur skartdiskur hjá þér :)
    kv. Hanna

    SvaraEyða
  2. Takk Hanna :) og takk fyrir að skilja eftir línu :D

    SvaraEyða
  3. Hæ og hó, vissi ekki að þú værir búin að blogga, gaman að sjá leirinn þinn og fallega liti, kúlan flott hér að ofan (þurfti mikið magn af efni...?) og undirskálin draumur í dós og blómin líka algjört æði, eru þau úr borðum eða bara e-u efni? Eru þetta nælur eða bara skraut?

    Takk fyrir mig, BARA gaman að fylgjast með hér :)

    SvaraEyða
  4. Sæl mín kæra :) nei það þarf nefnilega ekkert svo mikið efni, en kúlan er svosem ekkert mjög stór :) Blómin eru úr efni og eru bara stök ég er ekki búin að setja á þau neina nælu :)

    SvaraEyða